Fara í efni
Umræðan

Fáir miðar eftir á Akureyrarslaginn

Hátt í tvö þúsund áhorfendur voru á fyrri leik Akureyrarliðanna í Bestu deildinni á VÍS-velli Þórs í byrjun maí og ljóst að stemningin verður aftur frábær á mánudaginn þegar liðin mætast á nýjum Greifavelli KA. Mynd: Ármann

Fáir miðar eru eftir á viðureign KA og Þórs í Bestu deild karla í fótbolta sem fram fer á nýja KA-vellinum á mánudagskvöldið kemur, 27. júlí, og hefst klukkan 19.15.

Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA sagði við akureyri.net í dag að uppselt væri í nýju stúkuna og stóran hluta stæðanna sem verða við suðurenda og vesturhlið vallarins. Stuðningsmenn Þórs verða á pöllum aftan við syðra mark vallarins, á sama hátt og stuðningsmenn KA voru á fyrri leik liðanna á Þórsvellinum í vor.

Stuðningsmenn KA, sem ekki hafa fengið sæti í stúkunni, verða á pöllum meðfram stórum hluta vesturhliðar vallarins en varamannaskýlin verða beint framan við nýju stúkuna.

Eitthvað ennþá á lausu

„Við getum tekið á móti hátt í tvö þúsund manns í heildina. Um eitt þúsund manns komast í sæti í stúkunni og nálægt þúsund manns í kringum völlinn. Eins og staðan er núna þá er uppselt í stúkuna. Við erum að selja í stæðin í kringum völlinn og það gengur vel en eitthvað er ennþá á lausu.

Fyrir fyrri leikinn gegn Þór gerðum við samkomulag við Þórsara um að við fengjum 400 miða hjá þeim sem fóru í sölu okkar megin og svo er þetta alveg eins núna, Þór fékk 400 miða hjá okkur, sem eru allir farnir. Við eigum einhverja örfáa Þórsmiða eftir og getum bætt við 50 til 100 miðum fyrir þá. Eins er eitthvað ennþá laust í stæðin hjá KA ennþá,” sagði Sævar Pétursson.

Þetta er fyrsti heimaleikur KA á nýja vellinum en vegna framkvæmda við frágang á innviðum stúkunnar og byggingu nýja félagsheimilisins á svæðinu er ólíklegt að leikið verði aftur á honum fyrr en í upphafi keppnistímabilsins 2027. Sævar sagði að þó væri ekki útilokað að spila einn leik þar í haust.

Allt er að verða klárt á KA-svæðinu fyrir viðureign Akureyrarfélaganna á mánudagskvöldið. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00

Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
02. júlí 2026 | kl. 20:45