Fara í efni
Umræðan

Þór tapaði fyrir HK í fallbaráttuslag

HK fagnaði sigri gegn Þór í mikilvægum fallbaráttuslag. Mynd: mbl.is.

Þórsarar sóttu HK heim í mikilvægum fallbaráttuslag í efstu deild karla í handknattleik í gærkvöld. Eftir jafnan leik lengst af náðu HK-ingar að sigla framúr í lokin og landa 36:31 sigri. Fallbaráttuslagur Þórsara þyngist því enn, liðið er í næstneðsta sæti Olísdeildarinnar að 18 umferðum loknum.

Heimamenn tóku snemma forystu í leiknum en Þórsarar náðu að koma sér inn í leikinn og ná frumkvæðinu. Seinni hluti fyrri hálfleiks var hnífjafn og í leikhléi var staðan 20:19 HK í vil eftir að heimamenn skoruðu úr vítakasti í blálokin.

Seinni hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og leikurinn var í járnum þangað til í blálokin. Staðan var 27:27 þegar 10 mínútur voru eftir af leiknum en það voru HK-ingar sem voru sterkari á lokasprettinum. Þór skoraði ekki mark næstu 6 mínútur og þegar liðið átti möguleika á að koma sér inn í leikinn fór vítakast forgörðum og HK nýtti sér það. Lokatölur 36:31 HK í vil.

Næsti leikur Þórs er einnig gríðarlega mikilvægur í botnbaráttunni en þá sækir liðið Selfyssinga heim. Sá leikur fer fram næstkomandi laugardag.

Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 8, Kári Kristján Kristjánsson 5 (1 víti), Igor Chiseliov 4, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Arnór Þorri Þorsteinsson 3 (1 víti), Hákon Ingi Halldórsson 3, Aron Hólm Kristjánsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 2.

Varin skot: Nikola Radovanovic 13 (2 víti).

Mörk HK: Haukur Ingi Hauksson 11, Ágúst Guðmundsson 8 (1 víti), Sigurður Jefferson Guarino 5, Hjörtur Ingi Halldórsson 4, Andri Þór Helgason 4, Orfeus Andreou 3, Örn Alexandersson 1.

Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 14 (1 víti), Róbert Örn Karlsson 3, Jovan Kukobat 1 (1 víti).

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

stðan í Olísdeild karla

Kæra Akureyri, hvað viltu verða þegar þú verður stór?

Dagný Reykjalín skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 16:00

Ingibjörg er ljósið í myrkrinu

Jóhannes Gunnar Bjarnason skrifar
13. febrúar 2026 | kl. 10:40

Allt á floti allsstaðar?

Kristín Helga Schiöth skrifar
11. febrúar 2026 | kl. 09:30

Gleymum við stundum litlu fyrirtækjunum?

Sunna Hlín Jóhannesdóttir skrifar
10. febrúar 2026 | kl. 15:00

Á að höfða til kjósenda eða sérhagsmunahópa?

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
06. febrúar 2026 | kl. 21:30

Hvernig verður Akureyri svæðisborg?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
04. febrúar 2026 | kl. 06:00