Fara í efni
Umræðan

Skýr vilji til að efla körfuboltadeildina

Myndir: Helgi Heiðar Jóhannesson

„Það sem stóð upp úr var skýr vilji til að efla enn frekar hið góða starf sem unnið er innan deildarinnar,“ segir í tilkynningu körfuknattleiksdeildar Þórs í kjölfar súpufundar deildarinnar í félagsheimilinu Hamri síðastliðið fimmtudagskvöld þar sem um 60 manns mættu til að ræða stöðu og framtíð körfuboltans á Akureyri. „Fundurinn fór vel fram og einkenndist af hreinskilnum og uppbyggilegum umræðum,“ segir í tilkynningunni.

Körfuknattleiksdeild Þórs stendur nokkuð vel fjárhagslega, en ljóst er að mikilvægt er að fá fleiri sjálfboðaliða til starfa, að því er fram kemur. Áhersla er lögð á afmörkuð og viðráðanleg verkefni svo sem flestir geti lagt sitt af mörkum. Fjöldi fólks bauð sig fram á fundinum og forsvarsmenn deildarinnar vonast til að enn fleiri bætist í hópinn. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig í Facebook-hópinn „Bakland Þór Akureyri“, enda skiptir allt framlag máli. „Margt smátt gerir eitt STÓRT.“

Guðjón Andri Gylfason, formaður körfuknattleiksdeildar Þórs, á fundinum.

„Á fundinum kom skýrt fram að körfuknattleiksdeildin nýtur mikils velvilja og hefur afar öflugt bakland. Körfuknattleiksdeild Þórs var stofnuð fyrir 68 árum og hefur í gegnum tíðina alið upp fjölda leikmanna bæði í yngri flokkum og meistaraflokkum. Unglingastarfið er öflugt og um síðustu helgi hélt unglingaráðið t.d. utan um lokaumferð Íslandsmótsins í Minnibolta 11 ára stráka og stelpna. Fjölmennt mót, Dominos-mótið, sem haldið hefur verið árlega á Akureyri frá árinu 2019, en í ár mættu um 700 keppendur til leiks. Eftir lítilsháttar fækkun iðkenda í vetur er stefnt að því að fjölga aftur í yngri flokkum Þórs í körfuknattleik og fara yfir 200 iðkendur. Þá hefur deildin sjaldan átt jafn marga fulltrúa í unglingalandsliðum Íslands og nú.“

Í tilkynningunni, sem birt er á heimasíðu Þórs, segir að nýafstaðið tímabil hafi reynst krefjandi hjá meistaraflokki karla og herslumuninn vantað hjá meistaraflokki kvenna „eftir frábæra frammistöðu framan af. Einungis eitt og hálft ár er síðan kvennaliðið varð Meistarar meistaranna eftir sigur á Keflavík. Bæði meistaraflokksliðin eru hins vegar með unga og efnilega leikmenn innanborðs svo framtíð körfuboltans í Þorpinu er björt. Ekki skortir unga Þórsara fyrirmyndir þar sem öflugasti körfuknattleiksmaður landsins, landsliðsmiðherjinn Tryggvi Hlinason, er uppalinn Þórsari. Þá hafa uppöldu Þórsararnir Júlíus Orri Ágústsson og Eva Wium látið að sér kveða í vetur með liðum sínum, Tindastóli og Stjörnunni.“

Til viðbótar við æfingar og þátttöku í Íslandsmóti og bikarkeppnum í yngri flokkum og meistaraflokkum hafa Þórsarar einnig lagt áherslu á að tengjast bæjarbúum og gestum bæjarins með því að standa fyrir götukörfuboltamóti á Akureyrarvöku. Loks gleyma Þórsarar ekki eldri kynslóðinni þegar kemur að körfuboltanum og halda á hverju ári Pollamót Þórs í körfuknattleik, lang fjölmennasta heldri manna körfuknattleiksmót landsins.

Ofangreint sýnir vel á hversu sterkri hefð og breiðum grunni körfuboltinn á Akureyri stendur á. Full ástæða er því til bjartsýni fyrir hönd Körfuknattleiksdeildar Þórs.“

 

Að lokum eru allir sem hafa áhuga hafa á að taka þátt í starfinu eindregið hvattir til að bjóða fram krafta sína og að muna að skrá sig í Facebook-hópinn Bakland Þór Akureyri.

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00