Bæjarslagur, spyrna og alls konar hlaup
Íþróttaviðburðir vikunnar eru af stærra taginu, bæði í augum þeirra sem keppa og þeirra sem fylgjast með og styðja sitt fólk. Annars vegar er bæjarslagur í karlafótboltanum í kvöld, mánudagskvöld, og hins vegar ofurhlaupið Súlur Vertical á laugardag og er þetta í 11. sipti sem hlaup fer fram. Að auki heimsækja konurnar í fótboltanum ríkjandi Íslandsmeistara í Kópavoginn um miðja vikuna. Hlaupavikan er líka alls konar því áður en kemur að ofurhlaupinu verður hlaupið í sumarkjólum með freyðivín á fimmtudag og svo hlaupa krakkarnir í Kjarnaskógi á föstudag.
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ - fótbolti
Það hefur varla farið framhjá knattspyrnuáhugafólki á Akureyri að bæjarslagur er á dagskránni í kvöld þegar karlalið Akureyrar í Bestu deildinni, KA og Þór, mætast. Þetta er seinni leikur liðanna í mótinu fyrir tvískiptingu, en KA vann fyrri leikinn á nýjum Þórsvelli, VÍS-vellinum, í byrjun maí með einu marki gegn engu.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 16. umferð
Greifavöllurinn, nýr gervigrasvöllur vestan við KA-heimilið, kl. 19:15
KA - Þór
Bæði liðin eru að berjast við að forðast fall úr deildinni. Að loknum 15 umferðum er KA í 10. sæti deildarinnar með 14 stig, en Þór í 12. sætinu með 11 stig.
Nánar er fjallað um bæjarslaginn í viðtölum og öðrum greinum á akureyri.net í dag og í gær.
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ - fótbolti
Þegar öll liðin í Bestu deild kvenna hafa spilað 12 leiki situr Þór/KA í 8. sætinu með 12 stig og komst úr fallsæti í fyrsta skipti frá því í upphafi móts með sigri á ÍBV í síðasta leik. Keppni í neðri hluta deildarinnar er gríðarlega jöfn og spennandi og munar aðeins fimm stigum á liðinu í 5. sæti, sem er Grindavík/Njarðvík, og liðinu í 10. sæti, sem er Víkingur. Ásamt Víkingi er Valur í fallsæti með tíu stig, þar fyrir ofan er Þór/KA með 12, Fram og Þróttur með 13 stig og Grindavík/Njarðvík með 15.
Hjá Þór/KA er komið að heimsókn í Kópavoginn, en Breiðablik er í 2. sæti deildarinnar með 27. stig. Þessi lið mættust á Akureyri í maí og hafði Breiðablik þar betur, 3-1.
- Besta deild kvenna í knattspyrnu, 14. umferð
Kópavogsvöllur kl. 18
Breiðablik - Þór/KA
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ - hlaup
Mögulega er spurning hvort hlaupið á fimmtudag á heima í íþróttavikunni eða menningarvikunni, líklega hvoru tveggja.
- Kjarnaskógur kl. 17
Sumarkjóla- og freyðivínshlaup
Þátttakendur hittast á planinu við Kjarnakot og er farinn einn hringur, 2,2 kílómetrar, en þátttakendur mega fara lengra, hver á sínum hraða, hlaupið, skokkað, gengið. Upplýsingar um hlaupið má finna á síðu viðburðarins á Facebook.
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ - hlaup
- Kjarnaskógur kl. 16
Krakkahlaup Súlur Vertical
LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST - hlaup
Fjallahlaupið Súlur Vertical hefur sannarlega fest sig í sessi sem eitt af vinsælustu ofurhlaupunum á Íslandi. Hlaupið fer fram á laugardag um veslunarmannahelgina. Fyrsta hlaupið fór fram 2016 og hefur verið hlaupið á hverju ári nema 2020.
Boðið er upp á fjórar mismunandi hlaupaleiðir og vegalengdir, 19, 29, 43 og 100 km. Þrjú styttri hlaupin hefjast í Kjarnaskógi en 100 km hlaupið hefst við Goðafoss. Endamark er í miðbæ Akureyrar þar sem hlauparar koma niður Brekkugötuna síðustu metrana.
Allar upplýsingar um hlaupið má finna á vef hlaupsins, sulurvertical.is þaðan sem upplýsingarnar hér að neðan eru fengnar, en nákvæmari leiðalýsingar er að finna á vef hlaupsins. Örlítið misræmi er í textaupplýsingum og kortaupplýsingum um vegalengdir og hækkanir. Fyrstu keppendur í öllum vegalengdunum koma í mark í miðbæ Akureyrar um hádegisbil, en keppendur eru svo að koma í mark allan daginn. Endamarki verður lokað kl. 19.
Auk fjallahlaupsins er boðið upp á Þríleikinn. Í Þríleiknum er skíðagöngukeppni, malarhjólreiðar og svo fjallahlaupið sem fram fer um verslunarmannahelgina. Skíðagöngukeppnin fór fram 29. febrúar og á rætur að rekja til Hermannsgöngunnar, en tvær leiðir þar, Mjöll og Bylur, teljast með í þríleikskeppninni. Hjólreiðafélag Akureyrar sér um hjólreiðahluta þríleiksins og fer hann fram laugardaginn 8. ágúst.
Vakin er athygli á götulokunum og umferðarstýringum í tengslum við hlaupið, sjá hér neðar.
- Fálkinn - 19 km - 530 m hækkun
Byrjar í Kjarnaskógi, hlaupið upp í Fálkafell og niður í miðbæ.
Ræsing kl. 11:30
- Súlur 29 km - 1.410 m hækkun
Byrjað í Kjarnaskógi, farið upp á Súlur og niður aftur, þaðan niður í miðbæ.
Ræsing kl. 10
- Tröllið - 43 km - 1.870 m hækkun
Byrjað í Kjarnaskógi, báðir Súlutindar, Krummi, Litli Krummi, Lambárdalur, Lambárjökull, Lambáröxl, Glerárdalur, Lambi, niður Glerárdal og niður í miðbæ.
Ræsing: 8:00
- Gyðjan - 100 km - 3.580 m hækkun
Byrjað við Goðafoss, hlaupið um Bárðardal, yfir Belgsárfjall, um Fnjóskadal, um Þórðarstaðaskóg, Lundsskóg, Vaglaskóg, um Systragil, Þingmannaleið, Vaðlaheiði, yfir gömlu brýrnar á Eyjafjarðará, í Kjarnaskóg, upp í Gamla og Fálkafell, báðir Súlutindar, Krummi, Litli Krummi, Lambárdalur, Lambárjökull, Lambáröxl, Glerárdalur, Lambi og áfram niður Glerárdalinn og niður í miðbæ Akureyrar.
Ræsing kl. 21 (föstudagskvöld) - fyrri hópur, hlauparar með innan við 600 ITRA stig
Ræsing kl. 02:00 - seinni hópur, hlauparar með yfir 600 ITRA stig.
Götulokanir og umferðarstýring vegna hlaupara í Súlur Vertical.
- Brekkugata og Klettastígur verða lokuð laugardaginn 1. ágúst á tímabilinu kl. 11-18.
- Umferðarstýring verður vegna þátttakenda í hlaupinu á nokkrum stöðum.
- Við hringtorgið á mótum Hlíðarfjallsvegar og Hlíðarbrautar
- Við gatnamót Dalsbrautar og Borgarbrautar
- Í hluta Klettaborgar, frá göngustíg að Byggðavegi
- Á gatnamótum Klettaborgar og Byggðavegar
- Á Þórunnarstræti, gangbraut ofan við lögreglustöðina
- Á gatnamótum Brekkugötu og Oddeyrargötu
LAUGARDAGUR OG SUNNUDAGUR - 1.-2 ÁGÚST - akstursíþróttir
Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir tveimur keppnum um verslunarmannahelgina.
- Laugardagur 1. ágúst frá kl. 12
Íslandsmót í áttungsmílu - Sunndagur 2. ágúst frá kl. 12
Bikarmót í spyrnu
Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu
Svæðisborgin Akureyri
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Við erum kölluð til kosninga