Sylvía Mörk sigraði í A-flokki kvenna – MYNDIR
Uppfært: Keppni í fjallabruni hefur verið aflýst vegna veðurs, en hún átti að hefjast kl. 13.
Keppni á Fjallahjólreiðahelgi Hjólreiðafélags Akureyrar var fram haldið í gær og keppt í endúró í A- og B-flokki, Masters 35+, Junior og U17 kvenna. Sylvía Mörk Kristinsdóttir úr HFA vann A-flokk kvenna og Þórir Bjarni Traustason úr Tindi A-flokk karla. Jónas Stefánsson var efstur keppenda frá HFA í A-flokki karla, endaði í 2. sæti.
Sigurvegarar í einstökum flokkum, smellið á hvern flokk fyrir sig til að sjá úrslit í viðkomandi flokki. Öll úrslit og ráslista helgarinnar má finna á vefnum timataka.is.
- A-flokkur karla
Þórir Bjarni Traustason, Tindi - A-flokkur kvenna
Sylvía Mörk Kristinsdóttir, HFA - B-flokkur karla
Kári Orrason - B-flokkur kvenna
Svala Ýrr Björnsdóttir, HFA - Masters 35+ kvenna
Arna Benný Harðardóttir, HFA - Masters 35+ karla
Helgi Berg Friðþjófsson, Tindi - Junior-flokkur
Adam Fannar Hafsteinsson - U17 stúlkur
Birta Mjöll Adolfsdóttir, Vestra - Rafhjólaflokkur karla
Hlynur Snær Elmarsson, HFA
Í dag verður keppt í fjallabruni og hefst keppni kl. 13. Í A-flokki eru 20 keppendur skráðir til leiks og 45 í öðrum flokkum.
Ármann Hinrik sat fyrir keppendum með myndavélina og má sjá hluta af afrakstrinum hér að neðan.
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
Við erum kölluð til kosninga
Akureyri heilsar þér með bros á vör
Húsnæðiserfiðleikar ungs fólks innan ESB