Fara í efni
Umræðan

Brunað í brekkum Hlíðarfjalls – MYNDIR

Mynd: Ármann Hinrik.

Hjólreiðafélag Akureyrar stóð fyrir tveimur fjallabrunsmótum í Hlíðarfjalli um liðna helgi og voru bæði mótin bikarmót í röð Hjólreiðasambands Íslands. Það fyrra átti að fara fram fyrr í sumar en var frestað vegna veðurs. 

Ármann Hinrik hefur verið óþreytandi að elta hjólreiðafólk og annað íþróttafólk með myndavél og linsu að vopni. Hluti af afrakstri helgarinnar má sjá í myndaalbúmi hér neðst í fréttinni.

Laugardagur - þriðja bikarmót

Úrslit í einstökum flokkum verða ekki tíunduð hér heldur eru tenglar á úrslit í hverjum flokki fyrir sig á vefnum timataka.net. Keppendur úr Hjólreiðafélagi Akureyrar náðu 2. sæti í A-flokki karla og 3. sæti í A-flokki kvenna. Þrír keppendur frá HFA unnu sína flokka; Kristinn Magnússon vann Master 35+ flokk karla, Óli Bjarni Ólason vann U17 flokk karla og Björgvin Jóhann Eggertsson vann U15 flokk karla.

  • Konur - A-flokkur
    1. Sól Snorradóttir, HFR - 01:56,676
    3. Sylfía Mörk Kristinsdóttir, HFA - 02:04,261
  • Karlar - A-flokkur
    1. Jóhann Arnór Elíasson, Aftureldingu - 01:49,438
    2. Björn Andri Sigfússon, HFA - 01:49,783

Önnur úrslit í einstökum flokkum má finna á vefnum timataka.net eða smella á viðkomandi flokk her að neðan:

Sunnudagur - fimmta bikarmót

  • Konur - A-flokkur
    1. Sól Snorradóttir, HFR - 02:42,719
    2. Sylvía Mörk Kristinsdóttir, HFA - 02:55,660
  • Karlar - A-flokkur
    1. Jóhann Arnór Elíasson, Aftureldingu - 02:19,852
    2. Björn Andri Sigfússon, HFA - 02:22,761

Þrír keppendur frá HFA unnu sína flokka á sunnudeginum, þeir sömu og unnu daginn áður; Kristinn Magnússon vann Master 35+, Óli Bjarni Ólason vann U17 flokkinn og Björgvin Jóhann Eggertsson vann U15.

Úrslit í öðrum flokkum: 

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00