Fara í efni
Umræðan

Skapa sterka ímynd og sérstöðu

Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir (Begga), listrænn stjórnandi og Katrín Árnadóttir markaðsráðgjafi - stofnendur Komplíments.
Komplíment er nýstofnuð markaðs- og ráðgjafastofa á Akureyri sem veitir fyrirtækjum og stofnunum faglega aðstoð við að efla ímynd sína og markaðsstarf. Teymið samanstendur af reynslumiklum sérfræðingum í markaðsmálum, almannatengslum og hönnun, segir í kynningu á Komplíment.

 

  • Komplíment er eitt sex nýsköpunarverkefna sem DriftEA valdi í svokallaðan Hlunn og fá þau verkefni heildstæða aðstoð og ráðgjöf næstu 12 mánuði
  • Akureyri.net kynnir umrædd verkefni um þessar mundir, eitt í viku hverri. Grænafl var til umfjöllunar í síðustu viku en áður hafði verið fjallað ítarlega um verkefnið ÍBA 55+

  • DriftEA er miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar sem tók starfa á Akureyri í vetur
  • Alls fengu 14 verkefni inngöngu fyrr í vetur í nýsköpunarhraðal sem nefnist Slipptaka. Næsta skrefið að Slipptöku lokinni er Hlunnurinn sem er að sænskri fyrirmynd en DriftEA er í samstarfi við sænska frumkvöðlasetrið Sting

 

„Við munum fyrst um sinn einbeita okkur að því að lyfta undir með fyrirtækjum á svæðinu með verkefni sem sitja á hakanum. Þetta eru oft verkefni eins og uppfærsla vefsíðu og innihaldsrík efnissköpun fyrir samfélagsmiðla en einnig grafísk vinnsla efnis sem endurspeglar sérstöðu fyrirtækisins,“ segir Katrín Árnadóttir, sem stofnaði fyrirtækið ásamt Ingibjörgu Berglindi Guðmundsdóttur.

Katrín hefur áralanga reynslu af markaðsstarfi bæði sem forstöðumaður markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri og sem samskiptafulltrúi Sjúkrahússins á Akureyri, og Ingibjörg Berglind – alltaf kölluð Begga – hefur starfað sem grafískur hönnuður og teiknari í fjöldamörg ár.

Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir (Begga), til vinstri, listrænn stjórnandi og Katrín Árnadóttir markaðsráðgjafi - stofnendur Komplíments
Ímyndarsköpun er viðleitni til að stýra því hvernig umheimurinn sér einstakling, vöru, fyrirtæki eða stofnun, segja þær stöllur. Begga, listrænn stjórnandi Komplíments, þekkir það mjög vel: „Með vandaðri hönnun er hægt að skapa sterka ímynd og sérstöðu fyrir fyrirtæki og stofnanir sem stuðlar að auknu trausti og viðurkenningu samfélagsins,“ segir hún.
 
Katrín bjó í Þýskalandi í um 16 ár, fyrst við nám í fjölmiðlafræði og síðan vann hún í sendiráði Íslands í Berlín. Þá starfaði hún við heiðursþátttöku Íslands á bókamessunni í Frankfurt áður en hún stofnaði leiðsögufyrirtækið Berlínur ásamt Margréti Rós Harðadóttur. 
 

Begga stofnaði cave canem hönnunarstofu með eiginmanni sínum Finni Dúa Sigurðssyni árið 2018 og hefur átt farsælan feril í hönnun. Hún er menntaður tækniteiknari og grafískur hönnuður og hefur unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir um allt land. Þá er Begga einnig teiknari sem gefur henni og Komplíment mikla sérstöðu á markaðnum auk þess sem hún hefur tekið að sér að vera stílisti fyrir auglýsingar.

Komplíment – heimasíðan

Opið bréf til stjórnvalda

Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og aðrir starfsmenn lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri skrifa
03. desember 2025 | kl. 10:00

Fundur á Akureyri um hættulega úrelta stjórnarskrá Íslands

Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir skrifa
28. nóvember 2025 | kl. 18:00

Jákvæð áhrif millilandaflugs til Akureyrar eru miklu meiri en þú heldur

Lára Halldóra Eiríksdóttir skrifar
27. nóvember 2025 | kl. 10:30

Opið bréf til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 17:30

Eflum SAk

Ingvar Þóroddsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 15:10

Tryggjum öryggi eldri borgara

Sigurður Ágúst Sigurðsson skrifar
26. nóvember 2025 | kl. 15:00