Fara í efni
Umræðan

Sandra framlengir við 1. FC Köln til 2028

Sandra María Jessen skrifar undir nýjan samning við 1. FC Köln. Mynd af heimasíðu félagsins.

Sandra María Jessen, landsliðskona í knattspyrnu, hefur framlengt samning við þýska félagið 1. FC Köln til 30. júní 2028. Greint var frá þessu á miðlum félagsins í morgun. Ensk félög, sem hafa ekki verið nafngreind, sýndu Söndru Maríu áhuga á dögunum en hún ákvað að vera um kyrrt og segist mjög hamingjusöm í Köln.

Sandra María gekk til liðs við þýska félagið síðasta sumar og hefur gert níu mörk í þýsku deildinni í 17 leikjum og tvö í tveimur bikarleikjum.

Sandra segir á samfélagsmiðlum 1. FC Köln að þar sé hún í flottasta liðinu, vinni með besta starfsfólkinu og að stuðningsmennirnir séu frábærir. „FC er eins og ein stór fjölskylda og ég hef fengið ótrúlegan stuðning frá fyrsta degi. Mér líður gríðarlega vel vegna þess, hér fæ ég tækifæri til að standa mig vel og til að gefa eitthvað til baka. Ég hef allt til alls og gæti ekki verið ánægðari með þá ákvörðun mína um að vera áfram hjá FC Köln,“ segir Sandra María og bætir því við að hún hreinlega elski borgina.

Hætti við að fara til London!

Skemmtilegt myndband var birt á Instagram síðu 1. FC Köln í morgun þar sem Sandra María sást panta sér flug frá Köln til London í símanum, en hætti við áður en kaupin voru staðfest og segist síðan vera mjög ánægð í Köln og hafi ákveðið að vera áfram.

  • Smellið á myndina hér að neðan til að sjá myndbandið

Símafrí sem virkar í Akureyarbæ

Heimir Örn Árnason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 13:00

Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara

Mikael Snær Gíslason skrifar
16. apríl 2026 | kl. 12:45

Öryggi í fyrirrúmi - sameinumst öll um nýja Slökkvistöð á Akureyri

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 17:00

Er Loftbrúin næst?

Sverre Jakobsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 16:30

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11