Fara í efni
Umræðan

Opinn fundur mbl.is og Morgunblaðsins

Blaðamenn Morgunblaðsins og mbl.is eru á kosningaferðalagi um landið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga og halda opna borgarafundi hér á þar. Í kvöld verða þeir á Græna hattinum á Akureyri og þangað eru allir velkomnir. Fundurinn hefst kl. 20.00 en húsið verður opnað kl. 19.30.

 

„Á fundinum munu oddvitar og bæjarstjóraefni efstu sex framboðanna (miðað við nýjustu skoðanakannanir) kynna sig, helstu áherslumál sín og stefnuskrá flokka sinna fyrir bæjarbúum. Umræðum verður stýrt af blaðamönnunum Andrési Magnússyni og Stefáni Einari Stefánssyni,“ segir í tilkynningu frá Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins og mbl.is

„Markmið fundarins er að skapa vettvang fyrir íbúa til að kynna sér helstu áherslur og málefni, sem snúa að sveitarfélaginu, auk þess sem tækifæri gefst til að spyrja spurninga og taka þátt í umræðum um framtíð bæjarins,“ segir í tilkynningunni. „Allir bæjarbúar og nærsveitungar eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í lifandi og lýðræðislegri umræðu í aðdraganda kosninga.“

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00

Tökum næstu skref

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
16. maí 2026 | kl. 09:45