Fara í efni
Umræðan

Formenn nefnda og ráða á kjörtímabilinu

Mynd: Þorgeir Baldursson

Fulltrúar nýs meirihluta í bæjarstjórn Akureyrar kynntu í gær málefnasamning meirihlutans, eins og akureyri.net greindi frá, og þá kom líka í ljós hvernig formennska í nefndum og ráðum skiptist milli flokkanna.

Áður hafði komið fram að Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti D-lista, verður bæjarstjóri, Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-lista verður formaður bæjarráðs og Gunnar Már Gunnarsson, sem var í 2. sæti B-lista verður forseti bæjarstjórnar.

Aðrar helstu nefndir og ráð skiptast milli flokkanna eins og hér segir:

  • Formaður skipulagsráðs – Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti B-lista.
  • Formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs – Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, sem var í 2. sæti L-lista.
  • Formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs – Heimir Örn Árnason, sem var í 2. sæti D-lista.
  • Formaður velferðarráðs – Guðbjörg Anna Björnsdóttir, sem var í 4. sæti B-lista.
  • Formaður stjórnar Norðurorku – Preben Jón Pétursson, sem var í 3. sæti L-lista.
  • Formaður stjórnar Hafnasamlags Norðurlands – Sverre Andreas Jakobsson, sem var í 3. sæti B-lista.

 

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00

Akureyri tengd til framtíðar

Erik Figueras Torras skrifar
18. maí 2026 | kl. 06:00

Til hamingju með daginn!

Sindri S. Kristjánsson, Hanna Dóra Markúsdóttir og Sigrún Steinarsdóttir skrifa
16. maí 2026 | kl. 12:00