Fara í efni
Umræðan

Ný færavinda frá DNG – sú eldri tekin upp í

Nýja R1 færavindan frá DNG sameinar alla bestu eiginleika forvera sinna jafnframt því að byggja á nýjustu tækni og skila auknum afköstum við handfæraveiðar. Mynd: slippurinndng.is

DNG hefur þróað nýja handfæravindu, sem kemur í stað þeirrar sem upphaflega var byrjað að framleiða árið 1995. Að því er kemur fram í frétt frá DNG var orðið erfitt að nálgast ýmsa íhluti og rafbúnað í upprunalegu vindurnar vegna framþróunar í rafeinda- og hugbúnaði á heimsmarkaði og framleiðslu þeirra var því hætt.

C6000 færavindan sem byrjað var að framleiða árið 1995 var byltingarkennd framþróun í handfæraveiðum á Íslandi, að því er segir á ef Slippsins - DNG. Þó að vindunni hafi í grunninn lítið verið breytt á þessum 30 árum þá var hún í stöðugri þróun en hún er enn þann dag í dag algengasta handfæravinda í smábátaflotanum.

Hægt að setja gamla færavindu sem greiðslu upp í nýja

Í stað hennar hefur verið þróuð ný vinda, R1, sem nú er komin á markað og er enn fjölhæfari og öflugri en forveri hennar. „Óhætt er að segja að nýja R1 vindan samein[i] alla bestu eiginleika forvera sinna jafnframt því að byggja á nýjustu tækni og skila auknum afköstum við handfæraveiðar,“ segir í frétt DNG, og að nýja vindan hafi fengið mikið lof hjá smábátasjómönnum sem hafa notað hana.

Sökum þess að nánast ómögulegt er að nálgast nýja íhluti í gömlu C6000 vindurnar mun DNG hætta að þjónusta þær í áföngum á næstu tveimur árum. Í staðinn mun DNG taka gamlar vindur sem greiðslu upp í nýjar R1 vindur. Að auki býður DNG upp á sérstaka ráðgjöf þar sem eigendur C6000 vinda geta komið með þær og fengið ráðleggingar um viðgerð, yfirferð eða uppfærslu.

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00

Hvað felst í því að halda áfram aðildarviðræðum?

Erna Bjarnadóttir skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:30

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“

Hjörtur J. Guðmundsson skrifar
06. mars 2026 | kl. 09:20

Bæjarstjórnar-klúður í húsnæðismálum

Benedikt Sigurðarson skrifar
02. mars 2026 | kl. 12:30

Farsælt samstarf styður við börn og fjölskyldur í Norðurþingi

Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Sigrún V. Heimisdóttir og Elín Dröfn Þorvaldsdóttir skrifa
02. mars 2026 | kl. 06:00