Fara í efni
Umræðan

Mikilvægt í Höllinni í kvöld en KA lýkur keppni

Dagur Árni Heimisson og Einar Birgir Stefánsson verða á ferðinni í Grafarvogi í síðasta leik KA í vetur en Amandine Justine Toi í Höllinni á Akureyri þar sem ræðst hvort Þórsliðið endar í 3. eða 4. sæti Bónusdeildarinnar áður en úrslitakeppni hefst. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Tvö af íþróttaliðum bæjarins verða í eldlínunni í kvöld, annar leikurinn skiptir miklu máli upp á framhaldið en hinn fær engu breytt um lokaniðurstöðuna.

Kvennalið Þórs í körfubolta leikur í kvöld lokaleik sinn í efstu deild Íslandsmótsins, Bónusdeildinni, áður en kemur að úrslitakeppni. Þór fær Keflavík í heimsókn, en þessi lið berjast um 3. og 4. sæti deildarinnar. Niðurstaðan úr leiknum ræður því hvaða liði Þór mætir í átta liða úrslitunum sem hefjast undir mánaðamótin.

  • Bónusdeild kvenna í körfuknattleik
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Keflavík

Vinni Þór leikinn endar liðið í 3. sæti og mætir þá liðinu í 6. sæti, sem er efsta sætið í B-hluta deildarinnar. Andstæðingurinn yrði þá annaðhvort Tindastóll eða Stjarnan, sem eru jöfn með níu sigra og mætast í lokaumferðinni. Tapi Þór hins vegar fyrir Keflavík enda bæði liðin með 13 sigra og níu töp, en Keflavík myndi hirða 3. sætið vegna úrslita í innbyrðis viðureignum og Þór þá í 4. sæti og mætir liðinu í 5. sæti deildarinnar, neðsta sæti A-hlutans, sem er Valur.

KA gegn Fjölni

Lokaumferð Olísdeildar karla í handknattleik verður spiluð í kvöld og hefjast allir leikirnir kl. 19:30. KA sækir Fjölni heim í Grafarvoginn, en Fjölnismenn eru þegar fallnir úr deildinni. KA er í 9. sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina og ljóst að liðið fer ekki í úrslitakeppni deildarinnar.

  • Olísdeild karla í handknattleik
    Fjölnishöll kl. 19:30
    Fjölnir - KA

KA þarf hins vegar ekki að óttast fall þótt öll úrslit fari á versta veg því liðið er með 13 stig eins og Grótta, en ÍR er tveimur stigum á eftir. KA er með betri árangur í innbyrðis viðureignum gegn báðum þessum liðum og ljóst að liðið mun enda í 9. eða 10. sæti deildarinnar og lýkur keppnistímabilinu með leiknum gegn Fjölni í kvöld.

75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu

Clara Ganslandt skrifar
09. maí 2025 | kl. 16:30

Stækkun og endurbætur á félagsaðstöðu í Víðilundi

Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Gunnar Már Gunnarsson skrifa
08. maí 2025 | kl. 13:45

Líflínan

Ingibjörg Isaksen skrifar
07. maí 2025 | kl. 08:00

Samstaða, kjarkur og þor

Björn Snæbjörnsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 15:00

Um nesti, fótbolta og fótbolta kvenna

Þór Karls skrifar
30. apríl 2025 | kl. 06:00

Afgangur og þrír þræðir jarðtengingar

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
15. apríl 2025 | kl. 16:00