Fara í efni
Umræðan

LHÍ og HA bjóða upp á námskeið í listum

Námskeið sem Listaháskóli Íslands hefur hannað fyrir Háskólann á Akureyri hefjast á þessu ári. Kynningarfundur um námið verður haldinn á Listasafninu á morgun, mánudaginn 9. febrúar kl. 15.00. Blaðamaður akureyri.net ræddi við Ásthildi Björgu Jónsdóttur, verkefnastjóra hjá LHÍ.

„Fyrsta námskeið sem LHÍ mun bjóða upp á á Akureyri í samstarfi við HA er þriggja vikna leiklistarnám, sem gefur 6 einingar,“ segir Ásthildur Björg. „Þetta námskeið hefst í vor.“ 

„Næsta haust verður svo boðið upp á fjögur námskeið. Eitt á sviði sviðslistar, tvö á sviði myndlistar og eitt á sviði hönnunar. Þessi námskeið verða öll 6 einingar og eru ýmist með eina staðarlotu, tvær eða alveg í fjarnámi.“ 

„Síðan erum við líka að búa til minni námskeið, 2 eininga námskeið. Þau verða ýmist í fjar- eða staðnámi og eru á sviði myndlistar og hönnunar. Þessi námskeið verða sum hver kennd af listafólki á Akureyri.“ 

„Til að byrja með, þá eru þetta einingabær námskeið sem hægt er að nýta upp í gráðu við Listaháskólann. Við erum svo að þróa örnám sem verður allt að 59 einingar, kennt við HA frá LHÍ. Það verður hægt að nýta sem sérgrein eða inn í annað nám.“ 

„Hugmyndin er í raun ekki að búa til heildstætt BA nám, heldur færri eininga örnám sem hægt er að nýta inn í aðrar greinar. Til dæmis væri hægt að útskrifast í nútímafræði með áherslu á myndlist eða sjónlist.“

„Það gæti líka hentað mjög vel fyrir þau sem eru í iðjuþjálfun, að fá skapandi tól og tæki inn í sitt fag.“ 

„Þetta er ennþá í þróun, og við erum enn að skoða hvað fólk vill fá og hver þörfin er,“ segir Ásthildur Björg. Áhugasöm um málið er bent á að mæta á kynningarfundinn í Listasafninu, en hann er opinn öllum.

Kynningarfundurinn

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor mun setja fundinn, og svo verða erindi frá Jónu Hlíf Halldórsdóttur frá Bandalagi íslenskra listamanna um mikilvægi listnáms á háskólastigi utan höfuðborgarinnar og Ásthildi Björgu Jónsdóttur, verkefnastjóra Listaháskóla Íslands um fyrirhugað nám.

Að lokum verða umræður. Áslaug Ásgeirsdóttir, Tom Barry, sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs í HA og Ásthildur Björg ræða.

 

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli

Sindri S. Kristjánsson skrifar
20. júní 2026 | kl. 09:00

Fullveldi

Helgi Jónsson skrifar
18. júní 2026 | kl. 16:30

Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt

Heimir Örn Árnason skrifar
18. júní 2026 | kl. 06:00