Körfubolti: Annað tap Þórs í 1. deild kvenna
Kvennalið Þórs í körfubolta tapaði öðrum leik sínum í röð í 1. deildinni, og þar með öðrum leik sínum á tímabilinu, þegar liðið mætti Fjölni á útivelli í dag. Lokatölur urðu 94-75. Eftir 11 leikja sigurgöngu í deildinni hefur liðið nú tapað fyrir helstu keppinautunum í toppbaráttunni, Aþenu og Fjölni, en heldur þó 2. sæti deildarinnar.
Þór náði forystunni um tíma í fyrsta leikhlutanum, en Fjölnir jafnaði í 11-11 þegar fyrsti leikhlutinn var tæplega hálfnaður. Fátt gekk upp hjá Þórsliðinu á næstu mínútum, fjögur stig frá Þór á móti 15 stigum Fjölnis og munurinn allt í einu orðinn 11 stig eftir fyrsta leikhlutann. Þór náði að lagfæra stöðuna aðeins í öðrum leikhluta, munurinn sjö stig í leikhléi. Þórsliðinu gekk afar illa að hitta úr þriggja stiga skotum, hittu úr sex af 33 slíkum.
Fjölnir náði aftur að auka muninn í þriðja leikhlutanum og munurinn orðinn 16 stig fyrir lokafjórðunginn. Það breyttist lítið síðustu tíu mínúturnar þar til alveg í lokin að Fjölnir bætti við forystuna og náði mest 21 stigs forskoti, en munurinn að lokum 19 stig, 94-75.
Fjölnir - Þór (26-15) (23-27) 49-42 (21-12) (24-21) 94-75
Chloe Wilson skoraði flest stig Þórsara, 23, en Leilani Kapinus var langatkvæðamest Fjölniskvenna, skoraði 37 stig, tók 15 fráköst og átti átta stoðsendingar.
Helstu tölur hjá Þórsliðinu, stig/fráköst/stoðsendingar:
- Chloe Wilson 23/12/3 - 32 framlagspunktar
- Emma Karólína Snæbjarnardóttir 19/5/4
- Emilie Ravn 13/2/4
- Yvette Adriaans 12/9/2
- Sigurlaug Eva Jónasdóttir 8/2/1
- Karen Lind Helgadóttir 0/5/1
- Hjörtfríður Óðinsdóttir 0/0/1
Aþena vann stórsigur á KV og heldur toppsætinu sem liðið náði af Þór í síðustu umferð. Aþena hefur unnið 12 leiki, Þór 11 og Fjölnir tíu leiki. Þór vann fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í byrjun nóvember með 22 stigum, 81-59, og er því með betri innbyrðis árangur gegn Fjölni, þótt ekki hafi mátt miklu muna. Ekki er þó víst að árangur í innbyrðis viðureignum liðanna muni skipta máli þegar upp er staðið. Það veltur á úrslitum leikja sem eftir eru því Þórsliðið er enn með einum sigurleik meira en Fjölnir.
Þór á eftir að mæta ÍR, KV, Vestra, Selfossi og Snæfelli.
Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór?
Fyrir enn betri Akureyrarbæ
Er (ó)mögulegt að byggja ódýrt?
Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat