Fara í efni
Umræðan

KA nálægt því að ná stigi gegn KR

Markús Máni Pétursson, til vinstri, minnkaði muninn í 4:3 þegar nokkrar mínútur voru eftir og litlu munaði að Jeppe Pedersen, til hægri, jafnaði metin stuttu fyrir leikslok en Halldór Snær í marki KR varði skot hans snilldarlega. Myndir: Ármann Hinrik

KA heimsótti KR í efstu deild karla í knattspyrnu í gær og beið lægri hlut gegn heimaliðinu, 5:3, í kaflaskiptum leik. Eftir að KR hafði ráðið lögum og lofum framan af leik og náð þriggja marka forskoti náðu KA-menn að bíta frá sér og minnka muninn í eitt mark. KA var síðan nálægt því að jafna metin í lokin en í staðinn skoraði KR síðasta mark leiksins í uppbótartíma.

Leikir KR hafa hingað til verið miklir markaleikir og á því varð engin breyting í gær. Liðið spilar hraða og sókndjarfa knattspyrnu, sem andstæðingarnir eiga iðulega í vandræðum með að verjast. Á því varð heldur engin breyting – framan af leik. KR náði forystunni strax á 5. mínútu þegar Eiður Gauti Sæbjörnsson skallaði sendingu inn í teiginn fyrir fætur Arons Sigurðarsonar, sem var aleinn á markteig og skoraði auðveldlega. Varnarmenn KA voru þarna víðsfjarri. Áfram héldu KR-ingar að sækja og KA-liðið var hreinlega ekki með í leiknum. Annað markið kom á 17. mínútu eftir hraða sókn. Luke Rae renndi knettinum inn í teiginn þar sem Eiður Gauti tók við honum og átti ekki í erfiðleikum með að skora. Aftur voru varnarmenn KA víðsfjarri.

Jakob Snær Árnason, til vinstri, gerði fyrsta mark KA, minnkaði þá muninn í 3:1 og Birgir Baldvinsson, til hægri, gerði annað mark liðsins – breytti þá stöðunni í 4:2. Myndir: Ármann Hinrik

Eftir þetta mark náðu KA-menn aðeins að þétta raðirnar og veita heimamönnum einhverja mótspyrnu. Hins vegar náði KR að bæta við þriðja markinu í blálok fyrri hálfleiks, þegar boltinn hrökk til Luke Rae rétt utan vítateigs og hnitmiðað skot hans sigldi í bláhornið. 3:0 í leikhléi og útlitið var ekki gott fyrir KA.

KA lék mun betur í seinni hálfleik

KA-menn komu heldur hressari út í síðari hálfleikinn og lögðu allt í baráttuna. Á 63. mínútu fékk KA frekar vafasama aukaspyrnu rétt utan vítateigs en Hallgrími Mar Steingrímssyni gat ekki verið meira sama um það. Skot hans úr aukaspyrnunni hafnaði í þverslá KR-marksins og Jakob Snær Árnason fylgdi vel á eftir og kom knettinum í netið með bakfallsspyrnu. Tíu mínútum síðar fengu KR-ingar hins vegar aukaspyrnu rétt utan teigs og úr henni skoraði Aron Sigurðarson með glæsilegu skoti. Staðan orðin 4:1 og bara korter eftir af leiknum.

En KA-menn héldu baráttunni áfram og Birgir Baldvinsson minnkaði muninn á 82. mínútu með viðstöðulausu skoti frá vítateigslínunni í bláhornið. Og ekki nóg með það heldur skallaði Markús Máni Pétursson hornspyrnu Hallgríms Mars í netið, aðeins mínútu síðar. Skyndilega var munurinn bara eitt mark, 4:3. Við þessar sviptingar slokknaði á KR-ingum og þeir vissu ekki sitt rjúkandi ráð. KA hélt áfram að þjarma að þeim og jöfnunarmarkið lá í loftinu. Og það er hreinlega óskiljanlegt að það hafi ekki komið á 88. mínútu, þegar frábært skot Jeppe Pedersen stefndi upp í markhornið. Halldór Snær Georgsson í marki KR sýndi hins vegar stórkostleg tilþrif þegar hann kom fingurgómunum í knöttinn og náði að blaka honum yfir markið.

Áfram hélt dramað og á 90. mínútu virtist Jakob Snær vera togaður niður inni í vítateig en dómarinn var hins vegar ekki á þeirri skoðun að um brot hefði verið að ræða. Stuttu síðar komst Galdur Guðmundsson KR-ingur óáreittur inn í vítateig KA og fékk þar næði til að leggja boltann í netið úr þröngri stöðu fram hjá Steinþóri Má Auðunssyni í markinu. Þar með var staðan orðin 5:3 og sigur KR í höfn.

Þetta var sannarlega leikur mikilla sviptinga og framan af leik virtust KR-ingar ætla að valta alveg yfir KA. En eftir að KA-menn fóru að bíta frá sér jafnaðist leikurinn og seinni hálfleikurinn var mun betri hjá KA. Ekki munaði miklu að sú barátta dygði til að vinna upp forskot heimamanna en það gekk ekki upp að þessu sinni.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Af trjám, sól, skjóli og yndi

Ingólfur Jóhannsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Að þora ekki að ræða við nágranna sína

Ragnar Sverrisson skrifar
26. maí 2026 | kl. 13:15

Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!

Sindri S. Kristjánsson skrifar
23. maí 2026 | kl. 12:00

Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar

Erla Hrönn Unnsteinsdóttir skrifar
21. maí 2026 | kl. 10:10

Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal

Guðni Ágústsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 21:00

Samstaða og bjartsýni á landsfundi LEB

Björn Snæbjörnsson skrifar
19. maí 2026 | kl. 15:00