Átta fulltrúar frá KA á EM U18 í blaki
Blakdeild KA á alls átta fulltrúa í lokahópum U18 landsliða karla og kvenna í blaki sem taka þátt á EM í sumar en þetta er í fyrsta skiptið sem íslensk blaklandslið keppa á lokamóti EM. Bæði liðin tryggðu sér þátttökurétt eftir sigur á Evrópumóti smáþjóða fyrr á árinu.
EM hjá stelpunum fer fram í Lettlandi dagana 1.-12. júlí næstkomandi en KA á þrjá fulltrúa í hópnum. Það eru þær Anika Snædís Gautadóttir, Kara Margrét Árnadóttir og Katla Fönn Valsdóttir. Auk þeirra er Jóna Margrét Arnarsdóttir leikmaður KA ein af þjálfurum liðsins. Þá er Inga Björg Brynjúlfsdóttir einnig í hópnum en hún er að ganga í raðir KA frá Völsungi.
Strákarnir keppa á Ítalíu dagana 7.-18. júlí en frá KA eru í hópnum þeir Ágúst Leó Sigurfinnsson, Eiríkur Hrafn Baldvinsson, Hákon Freyr Arnarsson, Kristján Már Árnason og Þórarinn Bergur Arinbjarnarson.
Í frétt á vefsíðu KA segir að það verði virkilega spennandi að fylgjast með framgöngu liðanna á EM því bæði lið hafi unnið sannfærandi sigra á Evrópumóti smáþjóða. Flestir fulltrúar KA í landsliðunum hafi þegar náð að vinna sér sæti í meistaraflokksliðum KA og framtíðin sé því björt hjá blakdeild félagsins.
Að þora ekki að ræða við nágranna sína
Að loknum kosningum - takk fyrir okkur!
Opið bréf til verðandi bæjarstjórnar
Söguleg aftaka Hóla í Hjaltadal