Fara í efni
Umræðan

Íbúar Hörgársveitar orðnir yfir þúsund

Tímamótunum fagnað. Frá vinstri: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri, Bjarki Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir, Kristín Björk Gunnarsdóttir, Steingrímur Karlsson, Róbert Fanndal Jósavinsson, Sunna María Jónasdóttir og Árni Rúnar Örvarsson. Mynd af vef Hörgársveitar
Þau tímamót urðu nýverið í sögu Hörgársveitar að íbúar sveitarfélagsins eru orðnir fleiri en eitt þúsund. „Heiðurinn af því að vera íbúar númer 1.000 og 1.001 eiga hjónin Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson. Af því tilefni færði Hörgársveit þeim sérstakt viðurkenningarskjal til að minnast þessara sögulegu tímamóta,“ segir á vef sveitarfélagsins. Þar segir að tímamótin séu mikilvægur áfangi í uppbyggingu og vexti samfélagsins.
 
Íbúum fjölgað um 83% á einum áratug
 
Árið 2016 voru íbúar Hörgársveitar 547 talsins en nú, árið 2026, hefur sveitarfélagið náð þeim merka áfanga að telja 1.001 íbúa, sem fyrr segir. Það jafngildir fjölgun um 454 íbúa á aðeins tíu árum, eða um 83%.
 
Af 1.001 íbúa Hörgársveitar eru 246 undir 18 ára aldri, eða um 24,6% íbúa sveitarfélagsins. Það þýðir að tæplega einn af hverjum fjórum íbúum er barn eða ungmenni. „Það undirstrikar mikilvægi þess að hlúa að góðu skóla-, íþrótta- og frístundastarfi og skapa börnum og ungmennum góð skilyrði til að vaxa og dafna,“ segir á vef sveitarfélagsins.
 
Uppbygging í takt við fjölgunina
 
„Samhliða þessari miklu fjölgun hefur Hörgársveit lagt mikið í uppbyggingu innviða til að mæta þörfum vaxandi samfélags. Á undanförnum árum hefur meðal annars verið ráðist í stækkun leikskólans Álfasteins og Þelamerkurskóla til að tryggja börnum og fjölskyldum góða aðstöðu og þjónustu. Slík uppbygging er mikilvægur þáttur í því að skapa gott og eftirsóknarvert samfélag þar sem íbúar á öllum aldri hafa tækifæri til að dafna.“
 
Á vef Hörgársveitar segir að fjölgun íbúa skapi jafnframt spennandi tækifæri til að efla samfélagið enn frekar. Með fleiri íbúum fjölgi þeim sem taka þátt í félags- og menningarstarfi, auk þess sem fjölgunin skapi ný tækifæri í atvinnulífi og styrki þjónustu og mannlíf í sveitarfélaginu.
 

„Nýir íbúar færa með sér fjölbreytta þekkingu, reynslu og hugmyndir sem geta auðgað samfélagið og nýst því öllu. Þannig verður samfélagið fjölbreyttara, öflugra og betur í stakk búið til að takast á við verkefni framtíðarinnar.

Það er ánægjulegt að sjá Hörgársveit vaxa og dafna og við hlökkum til að halda áfram að byggja upp gott samfélag fyrir íbúa á öllum aldri.
Við bjóðum Kristínu Björk og Steingrím velkomin í hóp íbúa Hörgársveitar og þökkum öllum íbúum fyrir að vera hluti af þessari vegferð.“

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Sagan, umhverfið og sundlaugin á Kristnesi ómetanleg lífsgæði!

Jón Hlöðver Áskelsson skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00

Erum við ráðalaus gegn einmanaleika?

Sóley Björk Stefánsdóttir skrifar
29. október 2026 | kl. 15:15

Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm

Björn Snæbjörnsson skrifar
27. október 2026 | kl. 10:00