Fara í efni
Umræðan

Hilda Jana hættir í bæjarstjórn í vor

Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, ætlar ekki að gefa kost á sér í áframhaldandi leiðtogahlutverk innan flokksins þegar yfirstandandi kjörtímabili lýkur í vor. Þetta segir hún í svari við fyrirspurn akureyri.net.

Hilda Jana hefur leitt framboðslista Samfylkingarinnar í tvennum síðustu kosningum og hefur því setið átta ár í bæjarstjórn þegar kjörtímabilinu lýkur. Hún hyggst einbeita sér að starfi sínu sem samskiptastjóri Sjúkrahússins á Akureyri.

Svar Hildu Jönu í heild:

Ég mun ekki gefa kost á mér til að leiða lista Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningum í maí árið 2026. Ég hef tekið við starfi samskiptastjóra Sjúkrahússins á Akureyri, sem er ákaflega gefandi og krefjandi starf, sem ég hef áhuga á að helga mig alfarið í lok þessa kjörtímabils.
 
Kosið verður til sveitarstjórna 16. maí í vor.

Gleymda forvörnin

Stefán Oddur Hrafnsson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 12:00

Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum!

María Pálsdóttir skrifar
15. apríl 2026 | kl. 11:11

Siglingahús Nökkva – klárum verkefnið!

Tryggvi J. Heimisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Gamall maður fer í framboð

Ragnar Sverrisson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 08:45

Lóan er komin og sumarkvíðinn líka

Karen Sigurbjörnsdóttir skrifar
14. apríl 2026 | kl. 21:00

Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór?

Sindri S. Kristjánsson skrifar
14. apríl 2026 | kl. 09:00