Fara í efni
Umræðan

Íþróttir og menning ekki andstæðir pólar

Eðlilegt er og mikilvægt að tekist sé á um forgangsröðun fjármuna Akureyrarbæjar, en slík umræða verður að byggja á heildarmyndinni og réttum forsendum.

Þetta segir Gunnar Már Gunnarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar og forseti bæjarstjórnar Akureyrar, í grein sem akureyri.net birtir í dag. Tilefnið er grein Kristínar Helgu Schiöth, fulltrúa Samfylkingar í umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrar, sem akureyri.net birti á laugardaginn, þar sem Kristín Helga undraðist hve gríðarlega miklu fé er varið til uppbyggingar á svæðum stóru íþróttafélaganna í bænum, KA og Þórs. 

Samkvæmt drögum að framkvæmdaáætlun 2027 til 2030 er gert ráð fyrir samtals 3,88 milljarðum króna í framkvæmdir á svæðum stóru íþróttafélaganna tveggja, en það eru „samt ekki 3,88 milljarðar króna sem Akureyrarbær er að afhenda íþróttafélögunum. Höldum því til haga,“ skrifar Gunnar Már. „Þetta eru fjárfestingar í mannvirkjum og samfélagslegum innviðum á Akureyri. Mannvirkjum sem eru byggð til áratuga og nýtast börnum og ungmennum, skólum, íþróttastarfi, lýðheilsu og félagsstarfi eldri borgara og bæjarbúum öllum.“

Gunnar nefnir ýmsar aðrar framkvæmdir sem framundan eru og segir síðan: „Við verðum að passa okkur á að stilla íþróttum og menningu ekki upp sem andstæðum. Á undanförnum árum hefur Akureyrarbær ráðist í stór verkefni á sviði menningar. Þar má nefna bæði Hof og umfangsmikla uppbyggingu Listasafnsins á Akureyri. Hvoru tveggja stórar fjárfestingar. Menningarmál hafa því sannarlega ekki setið á hakanum og eiga ekki að gera það.“

Grein Gunnars Más: Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Nokkrar spurningar til Samfylkingarinnar

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 15:50

Áframhaldandi skilningsleysi nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 14:20

Látum Loftbrúna vera

Sindri S. Kristjánsson skrifar
03. nóvember 2026 | kl. 13:10

Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum

Gunnar M. Gunnarsson skrifar
02. nóvember 2026 | kl. 14:10

Félagsheimili eldri borgara á Akureyri

Björn Snæbjörnsson og Karl Erlendsson skrifa
02. nóvember 2026 | kl. 10:30

Játningar nýliða

Kristín Helga Schiöth skrifar
30. október 2026 | kl. 18:00