Fara í efni
Umræðan

Fullyrðing sem stenst alls ekki - óskiljanlegt

Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, lýsir furðu á yfirlýsingu 17 skipstjórnarmanna hjá Samherja sem þeir sendu frá sér í gær og greint var frá hér á Akureyri.net. Trausti birti eftirfarandi á heimasíðu Sjómannafélagsins:
 
„Í ljósi greinar sem birtist á heimasíðu Samherja þar sem skipstjórar og stýrimenn Samherja skrifa grein um hvað allt umtal um þetta mál með frystitogarann Júlíus Geirmundsson hefur haft neikvæð áhrif á ímynd almennings til sjómanna eða eins og þeir skrifa sjálfir í greininni: „umræðan í kringum þetta mál hefur skaðað ímynd sjómannastéttarinnar í landinu, bæði yfirmanna og undirmanna.“ Þá langar mig að vita að hvaða leyti það skaðar ímynd undirmanna á fiskiskipum að félagar þeirra leiti réttar síns og fari fram á sjópróf til þess eins að fá það staðfest hvað og hvernig þetta gat gerst. Ég hef ekki orðið var við neitt nema jákvæðni í garð þessara manna sem þarna eru að berjast fyrir því að sannleikurinn komi uppá yfirborðið. Þess vegna spyr ég, hvaðan hafa þessir skipstjórnarmenn þessar upplýsinga og afhverju halda þeir að fólk sé neikvætt út í sjómenn? Fyrir mér er þetta gersamlega óskiljanlegt og fullyrðing sem stenst alls ekki.“
 

 

Hvar á að leggja Blöndulínu 3?

Karl Ingólfsson skrifar
23. apríl 2024 | kl. 18:00

Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar

Skúli Bragi Geirdal skrifar
22. apríl 2024 | kl. 08:20

Hvar hvílir Jónas frá Hrafnagili?

Sunna Vilborg Jónsdóttir skrifar
21. apríl 2024 | kl. 06:00

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15