Fara í efni
Umræðan

Ferjan Sæfari siglir loks á ný á morgun

Mynd af akureyri.is: María H. Tryggvadóttir

Grímseyjarferjan Sæfari hefur loksins áætlunarsiglingar á ný á morgun, mánudaginn 30. mars, eftir umtalsverðar viðgerðir og umbætur. Þetta kemur á síðu eyjarinnar á vef Akureyrarbæjar.

„Þau sem stefna á að heimsækja Grímsey um páskana geta því hvort heldur sem er tekið ferju eða flug. Áætlunarferðir með ferjunni eru á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum og með flugi á þriðjudögum, föstudögum og sunnudögum. Yfir páskana fækkar áætlunarferðum eitthvað, sjá nánar á vef Vegagerðarinnar og Norlandair,“ segir í tilkynningunni.

„Í Grímsey eru þrír gististaðir, veitingastaður, búð og sundlaug. Skemmtilegasti tími ársins er fram undan með ríkulegu fuglalífi og björtum sumarnóttum. Sjófuglarnir eru farnir að setjast upp í björgin og það styttist óðum í að fyrstu lundarnir láti sjá sig en þeir fara yfirleitt að láta á sér kræla í kringum 10. apríl.“

Sæfari fór í slipp 19. janúar í reglubundið viðhald og viðgerðir. Upphaflega var gert ráð fyrir að ferjan yrði til þjónustu reiðubúin á ný að tiltölulega skömmum tíma liðnum en verkið reyndist mun tímafrekara en upphaflega var gert ráð fyrir.

Við ætlum að leggja okkar af mörkum

Óðinn Svan Óðinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir og Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifa
25. júní 2026 | kl. 17:00

Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn

Björn Snæbjörnsson skrifar
25. júní 2026 | kl. 10:45

Framtíð menntastofnana á Akureyri varðar okkur öll

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
23. júní 2026 | kl. 11:00

Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli

Sindri S. Kristjánsson skrifar
20. júní 2026 | kl. 09:00

Fullveldi

Helgi Jónsson skrifar
18. júní 2026 | kl. 16:30

Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt

Heimir Örn Árnason skrifar
18. júní 2026 | kl. 06:00