Fara í efni
Umræðan

Ætluðum okkur miklu meira en þetta

Andri Snær Stefánsson þjálfari KA. Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Við erum drullufúlir, það er hundfúlt að tapa svona leik. Við ætluðum okkur meiri og betri hluti,“ sagði Andri Snær Stefánsson þjálfari KA við akureyri.net eftir ósigurinn gegn Þór, 35-31, í úrvalsdeild karla í handbolta í KA-heimilinu í kvöld. 

Við byrjuðum leikinn frábærlega, vorum orkumiklir og með mikið sjálfstraust, en við vorum aular að missa þetta góða forskot svona fljótt niður. Síðan var þetta naglbítur til leiksloka eins og þetta vill oftast verða á milli þessara liða og ég er hundfúll að tapa.

Við stóðum langar varnir þar sem við vorum mjög þéttir, en þeir skoruðu mörk hvað eftir annað þegar hönd dómarans var komin upp og þeir fengu þessi augnablik öll með sér. Á sama tíma vorum við með slæma glatað bolta, og í heildina alltof marga. Við vorum sjálfum okkur verstir, finnst mér, það er ósköp einfalt.

Þið byrjuðuð mótið vel, fenguð fjögur stig í fyrstu tveimur leikjunum á útivelli svo það eru væntanlega vonbrigði að fara ekki betur af stað í fyrsta heimaleiknum?

„Þetta eru tvö töpuð stig og við verðum að bæta okkur. Allir leikir í þessari deild eru erfiðir og við verðum að stíga upp. Mér finnst við eiga mikið inni eftir þennan leik.“

Hvað finnst þér um deildina í haust, er hún betri en í fyrra?

„Já, ég held það. Breiddin er meiri hjá mörgum liðum, deildin er þétt og margir gríðarlega hraðir og sprækir leikmenn í liðunum, sérstaklega margir góðir sóknarmenn. Hún er hiklaust sterkari, mörg lið hafa náð sér í góða erlenda leikmenn og við höfum séð góðan handbolta í þessum fyrstu umferðum.“

Þetta var að sjálfsögðu sérstakur leikur, Akureyrarslagur, og þið hafið eflaust verið lengi með hann í sigtinu?

„Það er ekki spurning. Þetta er leikur sem við vorum búnir að horfa lengi eftir á dagatalinu og vorum mjög spenntir að mæta Þórsurum. Við ætluðum okkur miklu meira en þetta og þess vegna er súrt að tapa. En mótið er rétt að byrja, við vinnum þá í seinni leiknum á útivelli seinna í vetur. En núna hugsum við bara um næsta leik sem er gegn Val og þá er bara áfram gakk,“ sagði Andri Snær Stefánsson.

Ónýtt drasl-fólkið

Helgi Þórsson skrifar
15. september 2026 | kl. 20:00

Björgunarþyrla á Akureyri – staða máls

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
13. september 2026 | kl. 19:30

Það dugir skammt að breyta bókstöfum í tölustafi

Hlín Bolladóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 09:30

Píeta – mikilvægt úrræði í sjálfsvígsforvörnum

Oddný Jónsdóttir skrifar
12. september 2026 | kl. 06:00

Námaskarð, öryggismál

Þorkell Ásgeir Jóhannsson skrifar
11. september 2026 | kl. 16:00

Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga

Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
09. september 2026 | kl. 10:50