Fara í efni
Umræðan

Elínborg – meðmæli með biskupsefni

Það varð sóknarbörnum í Grundarfirði fljótt ljóst, þegar þau fóru að kynnast nýja sóknarprestinum sr. Elínborgu Sturludóttur, árið 2003, að þar var á ferðinni afburða manneskja. Nýi presturinn hafði sem vegarnesti djúpt innsæi, góðar gáfur og mannkosti til að takast á hendur fjölbreytt og vandasamt starf sóknarprests í sjávarþorpi. Hún gekk í verk af skörungsskap, en ekki síður af fagmennsku, hlýju og virðingu fyrir fólki og mismunandi aðstæðum þess, bæði í gleði og sorg. Hið sama má segja um störf hennar sem sveitaprests í Borgarfirði og Dómkirkjuprests, samtals í yfir 20 ár.

Í kosningum til embættis biskups Íslands hafa yfir 2.200 fulltrúar þjóðkirkjunnar kosningarétt. Við sem höfum fengið að starfa með eða kynnast störfum sr. Elínborgar, í þjónustu hennar við sóknarbörn og íbúa, gleðjumst innilega yfir því að hún bjóði sig fram til þessa mikilvæga embættis.

Þjóðkirkjan og sóknirnar vítt og breitt um landið eru mikilvægt net, ofið gegnum byggðir landsins, fjölmennar og fámennar. Kjarninn er að sjálfsögðu boðun fagnaðarerindisins en ennfremur hin mikilvæga félagslega og menningarlega þjónusta; hvort sem það er sálgæslan á stöðum þar sem fjölþætt heilbrigðisþjónusta er oft ekki til staðar, barna- og unglingastarf þar sem íbúafjöldinn er takmarkaður eða stuðningur við elstu íbúana, sem í æ ríkari mæli búa einir eða upplifa einsemd. Öll þessi þjónusta er veitt óháð því hvort fólk tilheyri þjóðkirkjunni, staðreynd sem oft gleymist. Þess vegna er sóknarpresturinn svo mikilvægur og allt starf söfnuðanna sem miðar að þessu marki. Þessari samfélagsþjónustu hefur Elínborg sinnt með stakri prýði, í sveit, bæ og borg. Hún þekkir ólíkt og krefjandi starfsumhverfi, áskoranir sóknanna, ekki síst þeirra minni, og starfsfólks þeirra, bæði launaðra og ólaunaðra.

Skyldur biskups við þennan hóp eru fjölmargar, bæði í trúarlegri leiðsögn og á sviði stjórnsýslu. Þegar erfið mál koma upp þarf sterkt og öruggt bakland fyrir sóknarnefndirnar og trúnaðarfólk safnaðanna. Sr. Elínborg er vel heima í málefnum og uppbyggingu þjóðkirkjunnar, eins og framganga hennar á nýafstöðnum kynningarfundum um landið ber vitni. Hún hefur dýrmæta reynslu, innsæi, menntun og mannkosti sem þörf er á við að leiða þjóðkirkjuna og styðja fulltrúa hennar á vegferð breytinga og nauðsynlegrar uppbyggingar, og til að stuðla að friði og samhug, sem svo víða skortir.

Við sem höfum verið svo lánsöm að starfa með eða kynnast störfum sr. Elínborgar Sturludóttur mælum innilega með henni sem verðugu efni í næsta biskup Íslands.

Björg Ágústsdóttir er íbúi í Grundarfirði

Áskorun vegna breytinga á geðþjónustu

Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar skrifar
10. júlí 2024 | kl. 18:08

Nýja viðbyggingin við SAk

Hjörleifur Hallgríms Herbertsson skrifar
10. júlí 2024 | kl. 17:45

KS og Kjarnafæði Norðlenska

Gísli Sigurgeirsson skrifar
09. júlí 2024 | kl. 14:05

Ályktun Geðhjálpar vegna breytinga á þjónustu

Stjórn Geðhjálpar skrifar
06. júlí 2024 | kl. 06:00

Yfirlýsing varðandi breytingar á leikskólagjöldum

Anna Júlíusdóttir skrifar
05. júlí 2024 | kl. 11:45

Opið bréf til forseta Íslands

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
04. júlí 2024 | kl. 11:00