Fara í efni
Umræðan

Ekkert gull að sækja í greipar Héraðsbúa

Axel Arnrsson og Christian Caldwell sækja að körfu Hattar í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í nóvember. Deontaye Buskey, stigahæsti leikmaður Hattar í gærkvöld, er til varnar. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar sóttu ekki gull í greiðar Héraðsbúa þegar körfuboltalið Akureyrar og Egilsstaða, Þór og Höttur, mættust á Egilsstöðum í gærkvöld. Heimamenn unnu með 24 stiga mun.

Þórsarar byrjuðu leikinn afar illa, skoruðu aðeins fimm stig í fyrsta leikhlutanum, en heimamenn í Hetti byrjuðu svosem ekki vel heldur, skoruðu 16 stig. Munurinn þó strax orðinn 11 stig eftir fyrta leikhlutann og hann hélt bara áfram að aukast út fyrri hálfleikinn, Þórsarar með 13 stig í öðrum leikhluta gegn 28 stigum Hattar og heimamenn með 26 stiga forystu eftir fyrri hálfleikinn. Þessi munur hélst meira og minna út leikinn og lokatölurnar 86-62, Hetti í vil.

Höttur - Þór (16-5) (28-13) 44-18 (20-23) (22-21) 86-62

Christian Caldwell skoraði flest stig Þórsara, 22. Paco Del Aquilla skoraði 13 stig og tók tíu fráköst. Deontaye Buskey skoraði 17 stig fyrir heimamenn. 

Helstu tölur hjá Þórsliðinu, stig/fráköst/stoðsendingar:

  • Christian Caldwell 22/5/1
  • Paco Del Aquilla 13/10/0
  • Hákon Hilmir Arnarsson 7/2/1
  • Eíríkur Frímann Jónsson 6/3/4
  • Finnbogi Páll Benónýsson 6/6/0
  • Páll Nóel Hjálmarsson 3/2/2
  • Axel Arnarsson 3/0/2
  • Týr Óskar Pratiksson 2/1/0
  • Smári Jónsson 0/3/1

Tölfræði leiksins

Staðan í deildinni

Opið bréf til íslenskra fjölmiðla - Hver eru markmið ykkar?

Daníel Andri Eggertsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 13:30

„Flest mulig – lengst mulig“ á Akureyri

Þóroddur Ingvarsson skrifar
12. mars 2026 | kl. 07:00

Lífsgæðakjarni við Rangárvelli

Þórhallur Jónsson skrifar
11. mars 2026 | kl. 16:45

Hljómburður í Matthíasarkirkju

Gísli Sigurgeirsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 18:00

Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi

Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
09. mars 2026 | kl. 15:45

Hvernig fjölga Akureyringar sér?

Þóroddur Bjarnason skrifar
08. mars 2026 | kl. 11:00