Fara í efni
Umræðan

Dagur Árni og Jens Bragi fara báðir á HM

U19 ára landsliðið sem varð í öðru sæti á Opna EM í Gautaborg. Dagur Árni er lengst til hægri í aftari röð en Jens Bragi annar frá vinstri í fremri röð. Mynd: handbolti.is

Tveir leikmenn úr KA voru valdir í 16 manna landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramót 19 ára og yngri í handbolta en mótið hefst í Egyptalandi miðvikudaginn 6. ágúst. Landsliðið er nánast eins skipað og liðið sem lék gríðarvel og vann til silfurverðlauna á Opna Evrópumóti 19 ára landsliða sem fram fór í Svíþjóð í byrjun júlí.

Annar KA-piltanna, Dagur Árni Heimisson, er reyndar genginn til liðs við Val en Jens Bragi Bergþórsson línumaður er einnig í hópnum. Dagur Árni var einmitt valinn besti leikmaður Opna Evrópumótsins.

Alls taka 32 lið þátt í heimsmeistaramótinu. Íslenska landsliðið er í efsta styrkleikaflokki í mótinu og verður í riðli með Brasilíu, Gíneu og Sádi-Arabíu. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komast áfram í hóp 16 efstu liða en tvö þau neðri leika meðal 16 neðri liðanna um forsetabikarinn.

Fyrsti leikur íslenska liðsins verður gegn Gíneu að morgni miðvikudagsins 6. ágúst.

Landbúnaður, fæðuöryggi, byggðamál og ESB

Hólmgeir Karlsson skrifar
27. júlí 2026 | kl. 06:00

Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Hjörtur Hjartarson skrifar
23. júlí 2026 | kl. 13:36

Svæðisborgin Akureyri

Sigurjón Þórðarson skrifar
13. júlí 2026 | kl. 06:00

Evrópusambandið, meira en tollabandalag

Steinar Harðarson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 18:00

Við erum kölluð til kosninga

Gunnar Már Gunnarsson skrifar
09. júlí 2026 | kl. 15:00

Akureyri heilsar þér með bros á vör

Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar
02. júlí 2026 | kl. 21:00