Stjarnan lagði Þór/KA 3:2 í jöfnum leik
Þór/KA beið lægri hlut gegn Stjörnunni á útivelli í efstu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur urðu 3:2 heimaliðinu í vil en miðað við gang leiksins hefði Þór/KA átt skilið stig úr þessari viðureign.
Stjarnan náði forystunni í leiknum strax á 6. mínútu þegar Þór/KA reyndi að spila út frá eigin vítateig en Stjarnan pressaði vel og þær náðu knettinum. Boltinn barst inn í teig og hrökk þar þvert yfir teiginn þar sem Fanney Lísa Jóhannesdóttir kom á ferðinni og setti boltann upp í markhornið.
Framan af leik réði Stjarnan gangi mála að mestu og voru grimmari á boltann. En Þór/KA náði smám saman að eflast og komast betur inn í leikinn. Á 28. mínútu átti Karen María Sigurgeirsdóttir gott skot af löngu færi sem Bridgette Nicole Skiba í Stjörnumarkinu náði að blaka yfir markið. Þór/KA jafnaði metin í 1:1 á 36. mínútu þegar María Dögg Jóhannsdóttir átti sendingu frá miðlínu úti hægra megin inn í vítateig Stjörnunnar, þar sem Bríet Jóhannsdóttir náði að skjóta sér fram fyrir varnarmann og pota boltanum framhjá Bridgette í markinu í fjærhornið. Vel að verki staðið hjá Bríet sem sýndi þarna ákveðni og grimmd í að ráðast að boltanum. Rétt fyrir leikhlé fékk Fanney Lísa, markaskorari Stjörnunnar, góða stungusendingu inn fyrir vörnina og var á auðum sjó gegn Allie Augur í markinu. Hún lyfti boltanum hins vegar bæði yfir Allie og markið. 1:1 var staðan í leikhléi.
Stjarnan skoraði úr báðum færum sínum eftir hlé
Jafnræði var með liðunum mestanpart seinni hálfleiks en Stjarnan náði að skora tvö mörk úr tveimur færum fyrri hluta hálfleiksins. Á 57. mínútu skallaði Snædís María Jörundsdóttir boltann af krafti í mark Þórs/KA, eftir góða sendingu af hægri kanti. Á 65. mínútu breyttist staðan í 3:1 þegar löng sending frá hægri barst út í vítateiginn vinstra megin hjá Þór/KA. Þar var Hulda Hrund Arnarsdóttir alein á auðum sjó og lagði boltann í fjærhornið framhjá Allie í markinu. Þór/KA hafði átt síst minna í leiknum eftir hlé og óhætt að segja að mörkin hafi komið gegn gangi leiksins.
Eftir markið reyndi Þór/KA að sækja en Stjarnan varðist vel og skipulega, auk þess sem oft vantaði herslumuninn hjá Þór/KA að koma sendingum á samherja þegar álitlegir sóknartilburðir nálguðust vítateig heimaliðsins. Á 84. mínútu kom þó gott færi þegar Erin Flurey komst inn í vítateig Stjörnunnar hægra megin af miklu harðfylgi, renndi boltanum inn á markteig þar sem Bríet Jóhannsdóttir var í dauðafæri. Skot hennar fór hins vegar beint á Bridgette í markinu.
Ágæt frammistaða hjá Þór/KA en engin uppskera
Á fyrstu mínútu uppbótartíma minnkaði Erin Flurey metin í 3:2 með marki úr vítaspyrnu, sem dæmd var eftir að brotið var á henni inni í vítateig. Leikmenn Þórs/KA reyndu síðan allt hvað þær gátu til að jafna metin, minnugar fyrri viðureignar liðanna í sumar þegar þær náðu 2:2 jafntefli á síðustu stundu. Í dag gekk það ekki og 3:2 tap staðreynd – í leik þar sem jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit. Talsverð batamerki hafa verið á leik Þórs/KA í síðustu leikjum og liðið hafði náð í 7 stig í síðustu þremur leikjum. Þótt ekkert stig hafi komið í pokann í dag hefði frammistaðan engu að síður verðskuldað einhverja uppskeru.
Fram sigraði Þrótt 1:0 í kvöld þannig að Þór/KA er í neðsta sætinu á ný. Fram hefur nú 10 stig að loknum 11 leikjum en Þór/KA er með 9 stig, einnig eftir 11 leiki. Næsti leikur liðsins er heimaleikur gegn ÍBV næstkomandi sunnudag.
Þarf sumarið að vera fullkomið?
Er hægt að spila fótbolta svona?
Vínviður Vínlands hins góða
Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð