Fara í efni
Pistlar

Spenna í blaki karla – fagna sumri á nýjum velli

Annan daginn í röð eru það akureyrsk blak- og fótboltalið sem eiga sviðið, í þetta sinn leika þau bæði á heimavelli. KA tekur á móti Þrótti R. í hnífjöfnu einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla og karlalið Þórs í knattspyrnu spilar fyrsta heimaleik sinn á tímabilinu á glænýjum gervigrasvelli á Þórssvæðinu.

Eftir 3-0 sigur gegn Þrótti í fyrsta leik úrslitaeinvígisins um Íslandsmeistaratitilinn í blaki karla tapaði KA annarri viðureigninni í oddahrinu eftir að hafa lent 0-2 undir og náð að jafna í 2-2. Liðin eru því hnífjöfn eftir tvær viðureignir og sú þriðja verður í KA-heimilinu á fimmtudag.

  • Unbroken-deild karla í blaki
    Úrslitaeinvígi, leikur 3
    KA-heimilið kl. 17
    KA - Þróttur R.
  • Útsending: Livey.events
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

Vinna þarf þrjá leiki til að hampa Íslandsmeistaratitlinum og því ljóst að úrslitaeinvígið fer að minnsta kosti í fjóra leiki, en ekki ólíklegt að það muni enda í oddaleik á Akureyri.

Sumri fagnað á nýju gervigrasi

Eftir nokkuð óvæntan sigur Þórs á Val að Hlíðarenda í fyrstu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu kom 5-2 tap fyrir KR í 2. umferð mótsins. Þór er því með þrjú stig úr fyrstu tveimur umferðunum og á fimmtudag er komið að fyrsta heimaleik liðsins í efstu deild frá því haustið 2014, nánar tiltekið 28. september 2014 þegar Þór vann Breiðablik 2-0.

Unnið hefur verið hörðum höndum að því að klára frágang margvíslegra atriða í umgjörð nýja gervigrasvallarins á Þórssvæðinu og allt að smella saman fyrir fyrsta heimaleik Þórsliðsins, að minnsta kosti orðið nógu margt klárt til að keppnisleyfi fáist fyrir völlinn, þó næstu dagar og ef til vill vikur fari í ýmsan lokafrágang. Þórsarar munu því fagna sumri með formlegum vígsluleik félagsins á nýju gervigrasi, velli sem þeir kalla VÍS-völlinn, en er staðsettur á svæði sem lengi hefur gengið undir nafninu Ásinn á Þórssvæðinu, væntanlega vegna nálægðar við Melgerðisás.

  • Besta deild karla í knattspyrnu
    VÍS-völlurinn (Þórsvöllur) kl. 17
    Þór - Fram

Um trjárækt árið 1916

Sigurður Arnarson skrifar
22. apríl 2026 | kl. 12:45

„Næring“ – meira en það sem er á disknum

Hrafnhildur Reykjalín skrifar
21. apríl 2026 | kl. 08:00

Laxness í norska Amaróhúsinu

Birgir Orri Ásgrímsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 12:00

Ólíkt undirlag, sama útkoma – sigur Þórs

Orri Páll Ormarsson skrifar
17. apríl 2026 | kl. 09:30

Knappareynir

Sigurður Arnarson skrifar
15. apríl 2026 | kl. 09:30

Verk gömlu meistaranna

Jóhann Árelíuz skrifar
12. apríl 2026 | kl. 06:00