Fara í efni
Pistlar

Norræn nemakeppni á Akureyri á næsta ári

Myndir af vef VMA

Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu verður í fyrsta skipti haldin á Akureyri í apríl á næsta ári. Keppnin „verður stór viðburður og er ljóst að hluti hennar verður í VMA - í húsakynnum matvælabrautar,“ segir á vef Verkmenntaskólans, en það var Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri kokkalandsliðsins, sem tilkynnti um keppnisstaðinn í matarveislu sem fram fór í skólanum í síðustu viku þar sem nemendur matvælabrautar buðu til í lok vorannar.

Norræna nemakeppnin „er fastur liður og þá koma saman nemendur í matreiðslu og framreiðslu frá öllum Norðurlöndunum og keppa sín í milli. Í hverju landi er forkeppni fyrir aðalkeppnina. Nemakeppnin í ár var haldin í Svíþjóð fyrir tæpum mánuði,“ segir á vef MA.

Í vetur hafa sjö nemendur stundað nám í 2. bekk í matreiðslu. Allir starfa þeir á veitingahúsum og eru þar á námssamningum. Til þess að geta farið í sveinspróf í matreiðslu þurfa þeir hins vegar að ljúka 3. bekknum og segir Benedikt Barðason skólameistari VMA að eindregið sé stefnt að því að þessi öflugi nemendahópur geti lokið við þriðja bekkinn á vorönn 2027 og fari þá í beinu framhaldi í sveinspróf og fái þannig réttindi sem matreiðslumenn.

Nánar hér á vef Verkmenntaskólans

Nemendur á matvælabraut VMA ásamt kennurum og skólameistara. Frá vinstri: Einar Gauti Helgason kennari, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Ari Hallgrímsson, kennari og brautarstjóri matvælabrautar VMA, Aron Máni Egilsson Heinesen, Kristjana Hvönn Steindórsdóttir, Hrund Nilima Birgisdóttir, Guðni Sæmundsson, Eyþór Ás Þórisson, Alexander Máni Mason og Benedikt Barðason, skólameistari VMA.

Strákur að norðan

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
31. maí 2026 | kl. 11:00

Frá Búastöðum í Borgir

Jóhann Árelíuz skrifar
31. maí 2026 | kl. 06:00

Æskuvinur minn Kunta Kinte

Orri Páll Ormarsson skrifar
29. maí 2026 | kl. 11:30

Um menntakerfið á tímum gervigreindar

Magnús Smári Smárason skrifar
29. maí 2026 | kl. 06:00

Silkitoppa

Sigurður Arnarson skrifar
27. maí 2026 | kl. 09:00

Í aðdraganda kvennakvölds: Með storminn í fangið

Haraldur Ingólfsson skrifar
26. maí 2026 | kl. 15:15