Fara í efni
Pistlar

Hátíðarmatur um borð og fáni dreginn að húni

Myndir af Facebook síðu Samherja
Ísak Oddgeirsson kokkur á Björgúlfi EA 312, togara Samherja, gerði sérlega vel við áhöfnina í dag, páskadag, að því er segir í skemmtilegri færslu á Facebook síðu fyrirtækisins. Togarinn er á vertíðarslóð suðvestur af Reykjanesi, þannig að áhöfnin er fjarri fjölskyldum og vinum um páskana, eins og margir aðrir sjómenn.
 
„Þetta tókst ljómandi, strákarnir fengu andarbringur með hazelback og balsamicgjáa og í eftirrétt var skyr-frauð með hvítu súkkulaði og bláberjum. Þeir áttu svo sannarlega skilið að fá hátíðarmat á þessum degi, strákarnir. Og svo fengu allir páskaegg, þannig að hérna ríkir hátíðarstemning og við biðum að heilsa í land, segir Ísak kokkur.
 
Sannarlega hátíð í bæ hjá Ísak og samherjum hans um borð. Og svo var íslenski fáninn dreginn að húni í tilefni dagsins, eins og sjá má á tveimur myndanna.
 
 
 

Hús dagsins: Sigtún; eldra íbúðarhús

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
14. júlí 2026 | kl. 09:00

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30