Fara í efni
Pistlar

Bikarinn: Þór-ÍBV og Fram-KA/Þór

Þórsarinn Brynjar Hólm Grétarsson í leik gegn Stjörnunni fyrr í vetur og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, leikmaður KA/Þór, í deildarleik gegn Fram á dögunum. Myndir: Ármann Hinrik

Þórsarar taka á móti Vestmannaeyingum í átta liða úrslitum bikarkeppni karla í handbolta, Powerade bikarsins, og KA/Þór mætir Fram á útivelli í bikarkeppni kvenna. Dregið var í dag.

Leikirnir fjórir í bikarkeppni karla fara allir fram föstudagskvöldið 18. desember samkvæmt heimasíðu HSÍ en kvennaliðin spreyta sig hins vegar ekki fyrr en þriðjudaginn 2. febrúar.

Bikarkeppni karla:

  • Afturelding - Haukar
  • Grótta - Valur
  • Víkingur - FH
  • Þór - ÍBV

Bikarkeppni kvenna:

  • Valur - Haukar
  • Fram - KA/Þór
  • ÍR - Selfoss
  • Stjarnan - HK

Sigurvegarar leikjanna tryggja sér sæti í bikarúrslitahelginni, þar sem Hin fjögur fræknu berjast um bikarmeistaratitilinn.

  • Undanúrslit bikarkeppni kvenna verða miðvikudaginn 31. mars og úrslit ráðast föstudagskvöldið 2. apríl.
  • Undanúrslit bikarkeppni karla verða föstudagskvöldið 2. apríl og úrslitaleikurinn fer fram laugardaginn 3. apríl.

Erfðafræði birkis

Sigurður Arnarson skrifar
18. nóvember 2026 | kl. 11:30

Hvernig er jafnvægið?

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
17. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hið næstum heimsfræga hjóltré

Sigurður Arnarson skrifar
11. nóvember 2026 | kl. 08:00

Akureyrin í Þorvaldi

Hjörleifur Hjartarson skrifar
09. nóvember 2026 | kl. 17:30

Hús dagsins: Hafnarstræti 67; Skjaldborg

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00

Hraunfellsbræður

Jóhann Árelíuz skrifar
08. nóvember 2026 | kl. 06:00