Fara í efni
Pistlar

Baldvin hlýtur enn eina viðurkenninguna

Baldvin Þór Magnússon (350) í Akureyrarhlaupinu sumarið 2022 þegar hann varð Íslandsmeistari í hálfmaraþoni. Á eftir honum er Arnar Pétursson úr Breiðabliki (360). Mynd: Skapti Hallgrímsson

Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar (UFA) var valinn hlaupari ársins í karlaflokki þegar hollvinafélagið Framfarir veitti á dögunum árlegar viðurkenningar sínar vegna afreka og árangurs ársins 2025. Aníta Hinriksdóttir úr FH var valin hlaupari ársins í kvennaflokki en hlauparar ársins eru valdir á forsendum stigaárangurs í millivegalengdum og langhlaupum. Þau Baldvin Þór og Aníta hlutu peningaverðlaun og viðurkenningarskjal.

Baldvin Þór hlaut 1202 World Athletics (WA) stig fyrir tíma sinn í 3000 metra hlaupi innanhúss en hann hljóp á 7:39,94 mínútum. Þá hlaut hann 1161 WA stig fyrir að hlaupa 1500 metra innanhúss á 3:39,67 mínútum og 1076 WA stig fyrir 10 km götuhlaup þegar hann hljóp á 28:37,00 mínútum.

Auk viðurkenninga til hlaupara ársins voru einnig veittar viðurkenningar vegna framfara yngri hlaupara (16-19 ára) og vegna Íslandsmeta í götu- og brautarhlaupum. Baldvin Þór fékk peningaverðlaun fyrir Íslandsmet í 10 km götuhlaupi, 1500 metra hlaupi innanhúss og 3000 metra hlaupi innanhúss.

Meðal annarra viðurkenninga sem Baldvin Þór hefur hlotið undanfarið má nefna að hann var valinn Íþróttakarl Akureyrar fyrir árið 2025 hjá Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA) og einnig varð hann hlutskarpastur í kosningu um Götu- og brautarhlaupara ársins 2025 hjá hlaupavefnum hlaup.is.

Framfarir er hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara en félagið var stofnað árið 2002 að tilstuðlan nokkurra eldhuga en flest eru þau enn í framlínunni í hlaupageiranum eða koma að skipulögðu starfi innan íþróttahreyfingarinnar. Formaður félagsins er Fríða Rún Þórðardóttir.

Þarf sumarið að vera fullkomið?

Hrafnhildur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar
14. júlí 2026 | kl. 06:00

Er hægt að spila fótbolta svona?

Orri Páll Ormarsson skrifar
10. júlí 2026 | kl. 11:00

Vínviður Vínlands hins góða

Sigurður Arnarson skrifar
08. júlí 2026 | kl. 10:00

Kreppuáll, fuglalíf og ástarglóð

Jóhann Árelíuz skrifar
05. júlí 2026 | kl. 06:00

Hagaskógrækt

Sigurður Arnarson skrifar
01. júlí 2026 | kl. 10:30

Byggðu líkama fyrir lífið

Guðrún Arngrímsdóttir skrifar
30. júní 2026 | kl. 06:00