Vísindaskólinn fær viðurkenningu Rannís

Vísindaskóli unga fólksins í Háskólanum á Akureyri hlaut í dag viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun. Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri og Dana Rán Jónsdóttir, verkefnastjóri Vísindaskólans, tóku við viðurkenningunni við opnun Vísindavöku Rannís 2025.
„Markmið Vísindaskólans er að bjóða fróðleiksfúsum ungmennum upp á fræðandi og skemmtilega afþreyingu í sumarleyfinu með því að kynnast vísindum og fræðasviðum sem endurspegla fjölbreytt námsframboð HA,“ segir í tilkynningu frá Rannís. „Nærri 900 nemendur hafa sótt skólann frá upphafi og hefur þátttaka í Vísindaskólanum stuðlað að því að opna augu þeirra fyrir mikilvægi háskóla- og vísindastarfs.“
„Vísindaskóli unga fólksins varð til fyrir ellefu árum þegar Sigrún Stefánsdóttir lagði til við þáverandi rektor að setja á laggirnar skóla að sumarlagi fyrir ungt fólk á aldrinum 11–13 ára. Tilgangurinn var að auka möguleika barna á að taka þátt í uppbyggilegu starfi þegar skólastarfi lýkur að vori. Hugmyndin fékk góðar undirtektir og skólinn tók í fyrsta skipti á móti nemendum árið 2015 með dyggum stuðningi frá Akureyrarbæ og fleiri aðilum.“
Vísindaskólinn stendur yfir í eina viku í júní þar sem kennd eru 5 ólík námskeið með það að markmiði að gefa ungmennum innsýn í starfsemi og rannsóknir ólíkra fræðigreina innan HA. „Frá upphafi hefur kennslan verið byggð á virkri þátttöku nemenda og lögð er áhersla á að fá hæfasta fólkið sem völ er á til að miðla sinni þekkingu,“ segir í tilkynningunni. „Skólinn er í góðri samvinnu við fyrirtæki á svæðinu og auk þess að kynnast vísindastarfi háskólans, hafa nemendur fengið innsýn í starfsemi þeirra. Um 30 fyrirtæki á svæðinu hafa verið heimsótt á þeim 11 árum sem skólinn hefur verið starfræktur, þ.á.m. Norðurorka, Lögreglustöðin, Sundlaug Akureyrar, FabLab, Flugsafnið, Skólphreinsistöðin í Bótinni, Minjasafnið og Kjarnaskógarsvæðið. Vísindaskólinn er þannig ómetanlegur samfélaginu og uppbyggingu á nærsvæðinu.“
- Vísindaskóli unga fólksins er rekinn af Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri og er verkefnastjórn í höndum Dönu Ránar Jónsdóttur sérfræðings hjá RHA og Sigrúnar Stefánsdóttur stundakennara við háskólann, fyrrverandi forseta hug- og félagsvísindasviðs og upphafsmanneskju skólans.