Fara í efni
Fréttir

Fyrst tunglfiskur, svo fannst túnfiskur

Magnús Víðisson, sjávarútvegsfræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Akureyri, við túnfiskinn í fjörunni, um 500 metrum frá þeim stað þar sem tunglfiskurinn fannst um daginn.

Tunglfiskur fannst á dögunum við Leiruveg á Akureyri eins og akureyri.net greindi frá og viku síðar, síðastliðinn föstudag, fannst bláuggatúnfiskur rekinn á land skammt frá.

Þótt þetta hljómi svipað, tunglfiskur og túnfiskur, eru tegundirnar ekkert skildar og það þykir með hreinum ólíkindum að báðar skuli finnast á þessu svæði enda báðar vanar að halda sig sunnar og í hlýrri sjó. Skammt er því stórra högga á milli.

Vísindamenn í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri (HA) sem akureyri.net ræddi við segja merkilegt að finna tunglfisk í Eyjafirði og einnig sé merkilegt að finna þar túnfisk. En að finna báðar tegundir með svo stuttu millibili sé mjög merkilegt – jafnvel stórmerkilegt!

Túnfiskur! Magnús Víðisson með fiskinn og til hægri mælir Hreiðar Þór Valtýsson túnfiskinn, sem reyndist 140 cm langur.

Ekki vitað um bláuggatúnfiska áður

Hreiðar Þór Valtýsson, fiskifræðingur og dósent við auðlindadeild HA, segir að þegar tilkynning barst um túnfiskinn hafi þeim hreinlega flogið í hug að um gabb hlyti að vera að ræða, slík væri tilviljunin, en túnfiskurinn reyndist raunverulegur eins og sá fyrri.

„Ekki hafa fundist heimildir fyrir því að bláuggatúnfiskar hafi fundist í Eyjafirði áður, en þeir veiðast alltaf annað slagið í hlýrri sjó fyrir sunnan land og hafa í einstaka tilfelli fundist norðar,“ segir Hreiðar, „til dæmis varð vart við túnfiska í Ísafjarðadjúpi og á Vopnafirði árið 1944.“

Bláuggatúnfiskur er merkilegur fiskur að mörgu leyti, að sögn Hreiðars. „Líkt og tunglfiskurinn, sem fannst viku áður, er hann úthafsfiskur í tiltölulega hlýjum sjó. Tunglfiskur getur líka orðið gríðarlega stór, en þar enda líkindin. Tunglfiskur er hægsyntur og talinn óætur á meðan bláugga túnfiskur er einn öflugasti sundfiskur heims og einnig einn af verðmætustu fiskum heims.“

Hreiðar nefnir að núna sé „hlýtt tímabil“ og hafi verið síðustu áratugi; þá verði einna helst vart við svona sjaldgæfa gesti sem séu annars sunnar. Hann segir sjávarhita núna um 10 gráður.

„Mögnuð tilviljun“

Frétt akureyri.net 7. september: