Vaka og Guðrún Rósa stýra nýjum sviðum í HA
Háskólinn á Akureyri (HA) hefur ráðið tvo sviðsstjóra yfir nýstofnuð svið innan skólans, þær Guðrúnu Rósu Þórsteinsdóttur á rannsókna- og doktorsnámssvið, og Vöku Óttarsdóttur, sem verður sviðsstjóri mannauðs- og samskiptasviðs. Stofnun þessara nýju sviða er hluti af endurskipulagningu stoðþjónustu og stjórnsýslu Háskólans, að því er fram kemur í frétt skólans.
Samkvæmt nýju skipuriti sem tók gildi 1. ágúst skiptist starfsemin í fjögur stoðsvið. Sigríður Huld Jónsdóttir stýrir náms- og kennsluþjónustusviði og Jón Steindór Árnason stýrir fjármála- og rekstrarsviði.
Guðrún Rósa yfir nýju rannsókna- og doktorsnámssviði
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir verður sviðsstjóri rannsókna- og doktorsnámssviðs. Sviðið fer með verkefni tengd rannsóknum, doktorsnámi og nýsköpun við háskólann. Í frétt HA segir Guðrún Rósa:
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með þessu tækifæri til að leiða áfram uppbyggingu rannsókna og doktorsnáms við Háskólann á Akureyri og taka þátt í næstu skrefum þeirrar vegferðar. Öflugt rannsóknastarf, nýsköpun og metnaðarfullt doktorsnám eru lykilþættir í áframhaldandi þróun háskólans og áhrifum hans á samfélagið. Markmið mitt er að styðja við öflugt rannsóknarumhverfi og skapa góð skilyrði fyrir doktorsnema og fræðafólk til að ná árangri, með þá framtíðarsýn að HA verði hér eftir, sem hingað til, eftirsóknarverður vettvangur fyrir framúrskarandi rannsóknir, nýsköpun og alþjóðlegt fræðasamstarf.“
Vaka stýrir nýju mannauðs- og samskiptasviði
Vaka Óttarsdóttir verður sviðsstjóri mannauðs- og samskiptasviðs. Undir sviðið falla gæða-, mannauðs-, samskipta- og markaðsmál, auk tiltekinna stjórnsýsluverkefna sem tengjast embætti rektors. Um ráðninguna segir Vaka í frétt HA:
„Ég er afar þakklát fyrir það tækifæri að fá að stýra Mannauðs- og samskiptasviði. Sviðið gegnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að styðja við starfsfólk og stúdenta, efla innri og ytri samskipti, tryggja gæði og stuðla að sterkri skipulagsheild. Ég hlakka til að vinna með starfsfólki, stúdentum og samstarfsaðilum að áframhaldandi þróun og eflingu háskólans á tímum örra breytinga og aukinna tækifæra.“
Nánar er fjallað um ráðninguna og skipulagsbreytingarnar á vef Háskólans - sjá hér.