Blöskraði umgengni skíðahópa í Hlíðarfjalli
„Börnin horfðu á þetta alveg gáttuð,“ sagði heimildamaður akureyri.net sem sendi meðfylgjandi myndir og myndband. „Þetta sér maður ekki á skíðasvæðum erlendis þó vínveitingastaðir séu með opið í fjallinu.“
Gestur í fjallinu sem var þar á ferð með dóttursyni sínum tók meðfylgjandi myndband úr Fjarkanum og myndir sem sýna glögglega hvernig gestir helgarinnar gengu um skíðasvæðið. Þarna er eins og tómum bjórdósum hafi verið hent úr stólalyftunni á leið upp og liggja dósirnar á víð og dreif eftir leið lyftunnar og umgengnin fjarri því að vera til fyrirmyndar á svæðinu.

Svona var þetta í Hlíðarfjalli í gær. Aðsendar myndir.
Um helgina voru háskólahópar í fjallinu að því er akureyri.net kemst næst og „stærsta afterski eftirpartý“ eins og það hét á auglýsingu haldið í bænum í gærkvöld.
Myndbandið hér að neðan er spilað á tvöföldum hraða.