Fara í efni
Fréttir

16 þúsund manns renndu sér í Hlíðarfjalli

Myndir: Þorgeir Baldursson

Um 16 þúsund manns renndu sér á skíðum í Hlíðarfjalli í Dymbilvikunni og um páskadagana, fleiri en á þessum tíma síðustu 16 ár. Þetta kemur fram á Facebook síðu skíðasvæðsisins í dag. Magnað, segir þar, „sérstaklega þar sem veðrið var að stríða okkur í Dymbilvikunni og það var lokað á skírdag.

Snjó kyngdi niður um tíma en strax hlýnaði mikið í veðri eftir helgina og lausamjöllinn sem gladdi marga er orðin að blautum vorsnjó, segir á síðu skíðasvæðisins. Aftur eigi að frysta um helgina sem sé frábært „því þá ætti þessi snjór sem við höfum í fjallinu að standa vel síðustu vikurnar hjá okkur fram að 50. Andrés[ar] andar leikunum sem verða þeir stærstu hingað til með tæplega 1100 þátttakendum.“ Leikarnir hefjast eftir hálfan mánuð.
 
 

Þorgeir Baldursson var á ferðinni með myndavélina í Hlíðarfjalli um páskana.