Tvær kennslustofur á lóð Lundarskóla
Unnið er að því að koma upp tveimur lausum kennslustofum á lóð Lundarskóla, til að bregðast við plássleysi í húsnæði skólans. Lundarskóli er fjölmennasti grunnskólinn á Akureyri og ásókn í hann er mikil. Í vetur stunda 480 börn þar nám og til að gæta jafnræðis hafa aðeins verið teknir inn nemendur sem eiga lögheimili í skólahverfi Lundarskóla.
„Þessi rými munu án efa nýtast okkur vel, bæta námsumhverfi nemenda og einnig munu þau gegna fjölbreyttu hlutverki. Á skólatíma verða húsin m.a. nýtt til almennrar kennslu þegar þarf að skipta upp stórum námshópum í ákveðnum verkefnum, tónlistarkennslu og mögulega fleira,“ segir Maríanna Ragnarsdóttir, skólastjóri Lundarskóla. „Eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur verða húsin nýtt fyrir frístunda- og félagsstarf skólans. Það á við um frístund fyrir nemendur á yngsta stigi, klúbbastarf á miðstigi og mögulega verða þau nýtt fyrir félagsstarf á unglingastigi. Við eigum þó eftir að hnýta alla lausa enda varðandi skipulagið,“ segir Maríanna. Hún vill ekki að svo stöddu tjá sig um það hvort um bráðabirgðalausn sé að ræða eða hvort húsin verði hluti af húsnæði skólans til lengri tíma.
Eldhús lítið miðað við stærð skólans
Akureyri.net hefur áður sagt frá því að Lundarskóli óskaði eftir því haustið 2025 við fræðslu- og lýðheilsuráð Akureyrarbæjar að fá 2-3 lausar kennslustofur á skólalóðina vegna fjölgunar nemenda. Þessi ósk var einnig ítrekuð í vor.
„Það bendir margt til þess að byggja þurfi við skólann þar sem matsalur er lítill miðað við fjölda nemenda og starfsfólks og eldhúsið er svokallað súpueldhús og er fremur lítið miðað við stærð skólans. Það þarf að púsla vel og gera gott skipulag til að öllum líði sem best í skólahúsnæðinu,“ segir Maríanna Ragnarsdóttir skólastjóri.

Vinna stóð yfir þar sem kennslustofurnar verða, þegar akureyri.net leit við í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Nokkrar lausar kennslustofur voru á skólalóð Lundarskóla fyrir um hálfum öðrum áratug – þar sem blái körfuboltavöllurinn er núna. Rauða örin bendir á svæðið þar sem nýju stofurnar verða. Mynd: Þorgeir Baldursson