Fara í efni
Fréttir

Styrkja Giljaskóla og Skautasambandið

Frá vinstri: Heiðdís Inga Hilmarsdóttir, verkefnastjóri sjálfbærnimála hjá Krónunni, Linda Óladóttir og Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, umsjónarkennarar í Giljaskóla, Erwin Van Der Werve, skautaþjálfari og Aldís Lilja Sigurðardóttir, stjórnarkona í Skautasambandi Íslands, og Bjarki Kristjánsson, verslunarstjóri Krónunnar á Akureyri. Mynd: Krónan

Útikennslustofa í Giljarjóðri og aukin tækifæri til skautaiðkunar eru meðal verkefna sem hljóta Samfélagsstyrk Krónunnar í ár. Bæði verkefnin skapa börnum og ungmennum fleiri tækifæri til að læra, hreyfa sig og njóta útiveru.


Giljaskóli á Akureyri er á meðal þeirra 17 sem hljóta samfélagsstyrk Krónunnar í ár. Styrkurinn var afhentur í verslun Krónunnar á dögunum og þar veittu fulltrúar Skautasambands Íslands einnig viðtöku styrks fyrir hönd sambandsins.

„Góðar hugmyndir geta haft mikil áhrif þegar þær fá tækifæri til að vaxa,“ segir í tilkynningu frá Krónunni. „Það sýna verkefni Giljaskóla á Akureyri og Skautasambands Íslands, sem bæði hafa hlotið Samfélagsstyrk Krónunnar 2026.“

Með styrknum fær Giljaskóli stuðning við uppbyggingu útikennslustofu í Giljarjóðri, en Skautasamband Íslands hlýtur styrk fyrir verkefnið Skautum hraðar. „Þótt verkefnin séu ólík eiga þau sameiginlegt markmið: að efla velferð barna og ungmenna og skapa þeim fjölbreyttari tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu.“

Námið færist út í náttúruna

Með uppbyggingu útikennslustofu í Giljarjóðri vill Giljaskóli skapa nemendum enn betri tækifæri til að tengja saman nám og náttúru, eins og það er orðað í tilkynningunni. Útinám geti opnað nýjar leiðir til þekkingaröflunar, vakið forvitni og gefið nemendum tækifæri til að læra í fjölbreyttu umhverfi utan hefðbundinnar kennslustofu.

„Útikennslustofan verður þannig liður í að færa námið nær náttúrunni og nýta nærumhverfið sem vettvang fyrir reynslumiðað nám, hreyfingu og samveru.“

Fleiri tækifæri til hreyfingar á skautum

Skautasamband Íslands hlýtur styrk fyrir verkefnið Skautum hraðar, sem miðar að því að efla tækifæri barna og ungmenna til skautaiðkunar.

„Hreyfing er mikilvægur þáttur í líkamlegri og andlegri vellíðan. Mikilvægt er að börn og ungmenni hafi aðgang að fjölbreyttum leiðum til að hreyfa sig, prófa nýjar íþróttir og finna sér áhugamál sem veita þeim gleði og útrás,“ segir í tilkynningunni.

Með verkefninu er lögð áhersla á að styðja við aukna hreyfingu og skapa fleiri tækifæri fyrir ungt fólk til að kynnast skautaíþróttinni. Styrkurinn nýtist félögum bæði á Akureyri og í Reykjavík.

Styður við góðar hugmyndir í nærsamfélaginu

Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem hafa jákvæð áhrif í nærsamfélögum, segir í tilkynningu. Við úthlutun sé meðal annars horft til lýðheilsustefnu Krónunnar, umhverfismála og þess hvernig verkefnin geti stuðlað að betri samfélögum. Sérstök áhersla hafi verið lögð á verkefni sem gagnist börnum og ungmennum.

Bjarki Kristjánsson, verslunarstjóri Krónunnar á Akureyri, segir verkefnin tvö góð dæmi um þann fjölbreytta stuðning sem samfélagsstyrkurinn stendur fyrir. „Samfélagsstyrkurinn snýst fyrst og fremst um að styðja við góðar hugmyndir sem verða til í nærsamfélaginu og geta haft jákvæð áhrif til framtíðar. Verkefnin tvö hér á Norðurlandi nálgast það með ólíkum hætti, annars vegar með því að færa nám barna meira út í nærumhverfið og hins vegar með því að efla tækifæri til hreyfingar. Það er einmitt fjölbreytni af þessu tagi sem við viljum sjá í Samfélagsstyrknum.“

Linda Óladóttir, umsjónarkennari í Giljaskóla, segir stuðninginn mikilvægan fyrir áframhaldandi uppbyggingu útikennslustofunnar. „Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn frá Krónunni. Með útikennslustofunni í Giljarjóðri viljum við skapa enn betri aðstæður til að færa námið út fyrir veggi skólans og nýta náttúruna og nærumhverfið í skólastarfinu. Styrkurinn hjálpar okkur að taka mikilvægt skref í þeirri uppbyggingu.“

Aldís Lilja Sigurðardóttir, stjórnarkona í Skautasambandi Íslands, segir styrkinn mikilvægan fyrir verkefnið Skautum hraðar. „Við erum afar þakklát fyrir styrkinn til verkefnisins Skautum hraðar. Stuðningurinn hjálpar okkur að efla skautastarfið og skapa fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni til að kynnast íþróttinni, hreyfa sig og njóta þess að vera á skautum.“