Fara í efni
Fréttir

Þetta var svigrúmið sem við töldum okkur hafa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri segir að sveitarfélagið hafi ákveðið að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði eins mikið á næsta ári og meirihluti bæjarstjórnar hafi talið svigrúm til innan fjárhagsáætlunar. Það sé rétt að lækkun álagningarhlutfallsins þýði ekki sjálfkrafa að heildarreikningur hvers fyrirtækis lækki en máli skipti að gera greinarmun á því sem sveitarfélag ákveður og hvað ekki.
 
Þetta segir Berglind Ósk innt eftir viðbrögðum við grein Páls Kristjánssonar, framkvæmdastjóra Slippsins, sem akureyri.net birti í gær. Páll gagnrýndi bæjaryfirvöld harðlega fyrir boðaða lækkun álagningarhlutfallsins og sagði í raun um hækkun að ræða. Slippurinn greiði á þessu ári liðlega 34,8 milljónir króna í fasteignagjöld og fasteignatengda skatta en upphæðin yrði 36,3 milljónir á næsta ári.
 
Þarf að skoða í stærra samhengi
 

„Við ákváðum að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði úr 1,61% í 1,59%. Sú ákvörðun þýðir að sveitarfélagið innheimtir um 25 milljónum króna minna af fyrirtækjum en ef hlutfallinu hefði verið haldið óbreyttu. Það eru um 25 milljónir sem Akureyrarbær hefur þá ekki til annarra verkefna og þjónustu,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir í skriflegu svari til akureyri.net. „Við gerð fjárhagsáætlunarinnar var þetta það svigrúm sem við töldum okkur hafa til að lækka álagningarhlutfallið samhliða ábyrgum rekstri sveitarfélagsins.“

Berglind Ósk segir að málið þurfi líka að skoða í stærra samhengi. „Við höfum ákveðið að takmarka hækkanir gjaldskráa sveitarfélagsins við 2,5% og jafnvel halda hluta þeirra óbreyttum er snýr að barnafjölskyldum,“ segir hún. „Með því er Akureyrarbær að leggja sitt af mörkum til þess að draga úr verðbólguþrýstingi í stað þess að velta kostnaðarhækkunum að fullu út í verðlag. Það skiptir máli núna, því eitt mikilvægasta verkefni næsta árs er að ná verðbólgunni niður svo forsendur skapist fyrir lægri vöxtum og betra rekstrarumhverfi fyrir heimili og fyrirtæki.“
 
Berglind segir: „Við getum alltaf gert betur og það er alls ekki útséð um hvað verður hægt að gera á næstu árum. Að þessu sinni töldum við þetta ábyrgt skref. Við lækkum álagningarhlutfallið eins mikið og við töldum svigrúm til innan fjárhagsáætlunarinnar og höldum um leið áfram að reka sveitarfélagið af ábyrgð og veita þá þjónustu sem íbúar og fyrirtæki reiða sig á.“
 

Grein Páls Kristjánssonar: Þegar hækkanir eru auglýstar sem lækkanir