Strandveiðiflotinn: Rafvæðing að hefjast
„Með þessum samningum má segja að rafvæðing íslenska strandveiðiflotans hefjist og það með aðstoð og fjármagni frá Suður-Kóreu,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Grænafls á Siglufirði, um þau tímamót sem verða í dag, miðvikudag, þegar samstarfssamningar Grænafls og suður-kóreskra aðila verða undirritaðir í Grósku í Reykjavík.
Grænafl, verkefni Kolbeins og Freys Steinars Gunnlaugssonar, hefur síðustu misseri unnið að orkuskiptum minni fiskiskipa og með samningnum færist verkefnið yfir á framkvæmdastig. Vinna við fyrsta bátinn, Oddverja SI 76, hefst í kjölfarið en olíuvél hans verður fjarlægð og í staðinn settur suður-kóreskur búnaður sem gerir bátnum kleift að ganga á rafmagni. „Reynslan af verkefninu getur síðan nýst við frekari rafvæðingu íslenska strandveiðiflotans,“ segir í tilkynningu frá Drift, miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar, sem stofnuð var á Akureyri í desember 2023.
Auk Grænafls taka íslensku fyrirtækin HS Orka, Rafal og Slippurinn Akureyri þátt í verkefninu.
„Grænafl fékk inngöngu í Drift EA eftir fyrstu Slipptökuna og er í dag hluti af Hlunninum, frumkvöðlaprógrammi Driftar fyrir fyrirtæki sem eru komin af hugmyndastigi og vilja taka næstu skref í uppbyggingu og vexti,“ segir í tilkynningunni frá Drift. „Hjá Drift hefur Grænafl fengið fjárfestingu, aðgang að ráðgjöf, tengslaneti, sérfræðingum og fjárfestingartækifærum sem styðja fyrirtækið við að þróa lausnina áfram og koma henni í framkvæmd.“
„Stórmerkilegt“
Um 20 manna sendinefnd frá Íslandi og Suður-Kóreu var samankomin á Siglufirði á mánudag „þar sem næstu skref voru tekin í verkefni Grænafls við rafvæðingu íslenskra strandveiðibáta,“ segir í tilkynningunni. Meðfylgjandi myndir voru teknar á Siglufirði á mánudaginn. Þar var rætt um rafvæðingu minni fiskiskipa, farið yfir tæknilegar útfærslur og lokahönd lögð á samningana sem undirritaðir verða í dag.
„Við höfum unnið ötullega að fjármögnun hér heima fyrir og vorum svo lánsöm að komast inn í Drift, þar sem við hlutum ómetanlegan stuðning. Við lokuðum síðan fjármögnunarlotu í vor og það losaði um fjármagn erlendis frá sem gerir okkur kleift að komast af undirbúningsstigi og í framkvæmdir. Það er í raun stórmerkilegt að kóresk stjórnvöld séu til í að styðja við rafvæðingu íslensks strandveiðibáts, en það er afrakstur mikillar vinnu síðustu ár,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé í fyrrnefndri tilkynningu.
Fyrri umfjöllun akureyri.net um Grænafl
- September 2024 – Spennandi verkefni um orkuskipti smábáta
- Mars 2025 – Vinna að orkuskiptum á Íslandi og í Kóreu

Frá vinstri: Kristján Þór Júlíusson stjórnarformaður Driftar EA, Hreinn Þór Hauksson leiðtogi frumkvöðla og fjárfestinga hjá Drift EA, Dr. Go frá Suður Kóreu, Kolbeinn Óttarsson Proppé framkvæmdastjóri og eigandi Grænafls, Sesselja I. Barðdal framkvæmdastýra Drift EA, og Freyr Steinar Gunnlaugsson eigandi Grænafls.