Fara í efni
Mannlíf

Sköpunarkraftur, ADHD og geðhvörf

Bryndís Ásmundsdóttir söngkona er viðmælandi Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta hlaðvarpsþættinum 10 bestu.

„Bryndís er nú meiri orkuboltinn. Við sátum saman og töluðum um allt milli himins og jarðar. Hún hefur komið víða við og segir okkur alls kyns sögur af bransanum og sjálfri sér,“ segir Ásgeir í kynningu þáttarins. „Hún er ótrúlega lífsglöð kona sem langar að gera allt. Hún greinist á eldri árum, eins og hún orðar það, með ADHD og Bipolar [geðhvörf] 1. Hún segir okkur hvernig það er að tækla það og ég spurði hana hvort það gæti unnið með henni í öllum sköpunarkraftinum sem umlykur hana á hverjum degi. Hún svaraði því virkilega vel. Eins og öllu öðru sem hún tekur sér fyrir hendur.“

Þess má geta í leiðinni að Bryndís verður með tónleika á Græna hattinum 12. nóvember.

Smellið hér til að hlusta á þáttinn.