Fara í efni
Mannlíf

Vendipunktur: Ásgeir ræðir við Karl Ágúst

Akureyringurinn Ásgeir Ólafsson Lie fór nýlega af stað með nýtt hlaðvarp sem hann kallar Vendipunkt. Hann hélt á sínum tíma úti hlaðvarpinu 10 bestu sem akureyri.net vakti jafnan athygli á og nú verður þráðurinn tekinn upp.

Ásgeir ræðir hér við Karl Ágúst Úlfsson leikara, leikstjóra, rithöfund, þýðanda og leikskáld. „Kalli segir okkur frá uppsetningu Harrýs og Heimis sem hefur verið sýnt nú fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann á einn mikilvægan vendipunkt í lífinu þar sem hann segir okkur frá því að hann sé mögulega ástæða þess að hann varð leikari,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. „Hvað ef þetta hefði ekki gerst og geta aðrir tekið þetta sér til fyrirmyndar? Endurskoðar maður líf sitt þegar maður veikist? Eigum við von á Karli í hádramatísku „vondukalla“ hlutverki?“

  • Smellið hér til að hlusta á þáttinn:

Vendipunktur - Karl Ágúst Úlfsson