Fara í efni
Mannlíf

10 bestu: Guðmundur Felix Grétarsson

Guðmundur Felix Grétarsson er gestur Ásgeirs Ólafssonar Lie í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu.
 
„Við áttum virkilega gott spjall um það sem Felix hefur gengið í gegnum frá því fyrst að hann var lítill strákur sem mótaði líf hans að hluta, að stóra slysinu þegar hann var aðeins 25 ára gamall og missti báðar hendur sínar í hræðilegu vinnuslysi,“ segir Ásgeir í kynningu á þættinum. Tíminn er rakinn allt frá slysinu til dagsins í dag þegar hann er kominn með tvo handleggi. Hvernig breytir svona lífsreynsla honum? Kemur hann sterkari undan þessu áfalli eða ekki? Og þá hvernig? Guðmundur lýsir þessu einkar vel.“
 
Guðmundur Felix er í framboð til embættis forseta Íslands. Í viðtalinu segir hann frá hugmyndum sínum um það hvernig embættið gæti orðið enn betra, segir Ásgeir og bætir við að Guðmundur Felix tali afar vel um Guðna Th. Jóhannesson sem lætur senn af embætti forseta.  Guðmund Felix „langar í aukið lýðræði og vinna fyrir alla hópa þjóðfélagsins í þágu þess að allir hafa það jafn gott. Sem er fallegt. Hvað móður sína Gullu varðar, sem settist við hlið hans eftir slysið og hefur ekki vikið þaðan síðan segir hann hana vera þá manneskju sem á stærstan þátt í því að hann sé á lífi í dag og sparar hann ekki orðin þar. Það er magnað og frelsandi að fá að sitja og hlusta á hann tala og segja frá þessari ótrúlegu lífsreynslu sinni, Hvernig hann steig upp. Hvað olli því að 15 árum síðar varð hann fyrstur allra í heiminum að fá grædda á sig tvo handleggi ? Lífsreynslusaga í sinni allra bestu mynd. Guðmundur er eins maður segir, verðugur frambjóðandi sem hefur margt fram að færa. Er manngóður og sækist í enn meiri náungakærleik. Hægt er að mæla með hans framboði inni á island.is,“ segir Ásgeir meðal annars.  
 
Smellið hér til að hlusta á þáttinn