Sigrún Ingimarsdóttir ráðin amtsbókavörður
Sigrún Ingimarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Amtsbóka- og Héraðsskjalasafnanna á Akureyri; amtsbókavörður, eins og embættið er gjarnan kallað. Greint er frá ráðningunni á vef Akureyrarbæjar í dag.
Sigrún er fædd og uppalin á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri árið 1987 og B.A.-prófi í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands árið 1992. Samhliða starfi sínu stundar hún meistaranám í stjórnun við Háskólann á Akureyri.
Að loknu námi hóf Sigrún störf hjá bókasafni Seðlabanka Íslands en var ráðin til starfa við Amtsbókasafnið á Akureyri árið 1993. Frá árinu 1996 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra lestrarsals- og skylduskiladeildar og jafnframt verið staðgengill amtsbókavarðar.
Sigrún tekur við sem amtsbókavörður af Hólmkeli Hreinssyni sem gegnt hefur starfinu í þrjá áratugi, síðan árið 1996, en sest í helgan stein í lok júlí; heldur þá „inn í endalausa verslunarmannahelgina“ eins og hann sagði kankvíslega í viðtali við akureyri.net í apríl.