Fara í efni
Menning

Hvíldin – ekki bara hefðbundin morðgáta

AF BÓKUM – 92

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Eydís Stefanía Kristjánsdóttir

_ _ _

Hvíldin eftir Ragnheiði Gestsdóttur

Bókin fjallar um tvær ólíkar konur, Piu sem vinnur á hjúkrunarheimili í Reykjavík og Matthildi Mínervu Matthíasdóttur, sem er prófessor og oft kölluð MMM. Matthildur kemur á hjúkrunarheimilið í hvíldarinnlögn og þrátt fyrir aldursmuninn tengjast Pia og Matthildur góðum vinaböndum og Pia treystir henni fyrir leyndarmálum sínum. Óvænt dauðsfall á heimilinu fær þær Piu og MMM til þess að vinna saman að því að rannsaka málið.
 
Þessi bók Ragnheiðar er ólík þeim sem ég hef lesið áður. Hún er hugljúfari vegna þessara vináttubanda sem myndast á milli hinar ungu Piu og Matthildar, en vinátta þeirra verður stór hluti af sögunni.
 
Ég myndi mæla með Hvíldinni fyrir fólk sem hefur gaman af íslenskum glæpasögum en vill líka lesa um persónur, vináttu og daglegt líf. Bókin er ekki bara hefðbundin morðgáta heldur snýst hún líka mikið um fólkið sem býr og starfar á hjúkrunarheimilinu. Ef þú hefur gaman af hægari og persónulegri glæpasögum gæti Hvíldin verið góð bók fyrir þig.