Fara í efni
Fréttir

Samherji einn helsti samstarfsaðili HSÍ

Jón Halldórsson, formaður HSÍ, Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf. og Harpa Vífilsdóttir, stjórnarmaður í HSÍ. Mynd af vef Samherja.

Samherji hf. verður einn helsti samstarfsaðili Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) á komandi árum. Samningur þar að lútandi hefur verið undirritaður að því er fram kemur í tilkynningu í morgun.

Samningurinn nær til landsliða karla og kvenna ásamt yngri landsliðum„ og felur í sér stuðning við áframhaldandi uppbyggingu afreksstarfs og þróun handboltans á landsvísu. Í kjölfar samstarfsins mun merki Samherja birtast á keppnisbúningum íslenskra landsliða og í tengslum við verkefni þeirra erlendis og heima fyrir,“ segir í tilkynningunni.

„Við erum mjög ánægð með að fá Samherja til samstarfs sem einn af okkar lykilaðilum. Sterkir og áreiðanlegir samstarfsaðilar skipta miklu máli í þeirri uppbyggingu sem fram undan er, bæði þegar kemur að afreksumhverfi og áframhaldandi eflingu handboltans um land allt,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ.

Stoltur styrktaraðili

Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja hf., segir að það sé vel við hæfi að framleiðendur sjávarafurða styðji við bakið á öflugu íþróttafólki sem hámarki árangur sinn með hollu mataræði. Þar eigi góður og næringarríkur fiskur, eins og Besti bitinn af þorskinum, vísan stað.

„Íslenskur handbolti er órjúfanlegur hluti af þjóðarsálinni, rétt eins og fiskurinn. Við hjá Samherja erum afar stolt af því að verða einn af helstu samstarfsaðilum HSÍ og geta þannig stutt við íslensku landsliðin í handbolta,“ er haft eftir Baldvin í tilkynningunni.