Fara í efni
Menning

Opnun: Mitt rými og keramik Margrétar Jóns

Frá opnun samsýningar norðlenskra listamanna 'Afmæli' árið 2023, en Listasafnið heldur þessar sýningar annað hvert ár. Mynd: listak.is

Fimmtudagskvöldið 5. júní kl. 20-22 verður opnuð samsýning norðlenskra listamanna, Mitt rými, og yfirlitssýning á verkum Margrétar Jónsdóttur, Kimarek – Keramik, í Listasafninu á Akureyri. Boðið verður upp á listamannaspjall með Margréti kl. 20.45 og leiðsögn um Mitt rými með Katrínu Björgu Gunnarsdóttur, sýningarstjóra, kl. 21.15.

Sneiðmynd af norðlenskri samtímalist

Listasafnið auglýsti fyrr á árinu eftir umsóknum um þátttöku í samsýningu norðlenskra listamanna og sérstök dómnefnd valdi inn verk. Alls voru valin verk eftir sautján listamenn. Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar.

Dómnefnd valdi úr umsóknum sem bárust, en listamennirnir sem taka þátt í ár eru þau Arthur Ragnarsson, Brynja Baldursdóttir, Egill Logi Jónasson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Hlynur Hallsson, Inga Lísa Middleton, Íris Eggertsdóttir, Karl Guðmundsson | Rósa Júlíusdóttir, Katrin Hahner, Kristján Helgason, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Sunna Svavarsdóttir og Tereza Kocianova.

Dómnefndina skipuðu Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Erling Jóhannesson, gullsmiður og leikari, Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur og sjálfstæður sýningarstjóri, Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga, og Katrín Björ Gunnarsdóttir, sýningarstjóri.

 

Margrét Jónsdóttir og verk hennar. Myndir: listak.is

40 ára starfsferli fagnað

Í tilefni af 40 ára starfsferli Margrétar Jónsdóttur óskaði Listasafnið eftir samstarfi við almenning um lán á einstaka munum fyrir yfirlitssýningu hennar, Kimarek – Keramik. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og safnaðist fjöldi muna. Á sýningunni verða munirnir settir saman í eina innsetningu og er ætlað að spanna tímabilið frá upphafi ferils Margrétar til dagsins í dag.

Margrét Jónsdóttir er fædd á Akureyri 1961. Hún fór ung til Danmerkur og nam leirlist í listiðnaðarskólanum í Kolding, en snéri heim að námi loknu 1985 og stofnaði sitt eigið leirverkstæði í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í rúm 20 ár hefur hún haft vinnustofu í Gránufélagsgötu 48 á Akureyri, þar sem hún vinnur að list sinni og selur eigin verk.

Viðfangsefni Margrétar hafa verið margvísleg í gegnum tíðina og hún unnið jöfnum höndum að gerð nytjalistar, stærri listmuna og listskreytinga. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis.

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir.