Fara í efni
Menning

Akureyri suðupottur gjörningalistar á A!

Meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni er Diana Burkot úr Pussy Riot sem flytur lifandi tónlistargjörninginn Sweat & Blood.

Á næstu dögum verður Akureyri vettvangur fyrir fjölbreytta gjörningalist þegar alþjóðlega gjörningahátíðin A! fer fram í tólfta sinn. Diana Burkot, sem er meðlimur rússneska listahópsins Pussy Riot, er einn gesta hátíðarinnar að þessu sinni.

Hátíðin hefst í dag og stendur til laugardagskvölds. Fjölbreytt dagskrá verður í boði og listamenn frá Íslandi og erlendis leiða saman gjörningalist, dans, myndlist, tónlist og leikhús. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar.

A! hefur frá upphafi lagt áherslu á gjörningalist í allri sinni fjölbreytni og er ein fárra íslenskra listahátíða sem helguð eru þessu listformi. Viðburðirnir fara fram á ólíkum stöðum í bænum og gefst gestum þannig færi á að upplifa listina í fjölbreyttu umhverfi.

Anna Richardsdóttir flytur gjörninginn „Útgerð konu“ í kirkjutröppunum á laugardaginn.

Dagskrá ársins endurspeglar breidd gjörningalistarinnar. Þar verður meðal annars fjallað um tengsl manns og náttúru, tíma og bið, ást og leyndarmál, en einnig má búast við verkum þar sem tónlist, hreyfing, líkaminn og sýningarrýmið sjálft verða hluti af viðfangsefninu.

Meðal erlendra gesta hátíðarinnar í ár er Diana Burkot, sem er meðlimur rússneska listahópsins Pussy Riot. Hún flytur verkið Sweat & Blood, lifandi tónlistargjörning þar sem rafræn tónlist, rödd, líkamlegur gjörningur og sjónrænir þættir fléttast saman.

Japanski listahópurinn Yubusha tekur einnig þátt og sýnir nýjan Butoh-gjörning sem þróaður hefur verið hér á landi. Þar kannar hópurinn tengsl fólks við land, steina og andlega heima og blandar saman japanskri hefð og íslenskri þjóðtrú. Rannsókn hópsins hér á landi byggir meðal annars á sögum og trúarhugmyndum sem tengjast steinum og landslagi á Akureyri og í nágrenni.

I WILL NEVER BE THE SAME AGAIN heitir tveggja tíma gjörningur listamannahópsins LiLi Re frá Noregi, sem fluttur verður á föstudagskvöldið og hefst við inngang Listasafnsins.

Gjörningalist hefur á undanförnum áratugum færst nær miðju samtímalistarinnar og innan hennar rúmast ólíkar aðferðir og nálganir. A! býður gestum að kynnast þessu fjölbreytta listformi og upplifa jafnframt bæinn og rými hans á annan hátt.

A! er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Menningarfélags Akureyrar, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri.