Lánsöm að fá Zimoun alla leið til Akureyrar
Sýning á verkum svissneska listamannsins Zimoun verður opnuð í Listasafninu á Akureyri í kvöld, fimmtudagskvöldið 4. júní, kl. 20, en er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Listamaðurinn hefur hlotið alþjóðlega athygli fyrir umfangsmiklar hljóðinnsetningar, hann hefur sýnt verk víða í söfnum og sýningarrýmum um allan heim og Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, segir Íslendinga lánsama að fá listamanninn til landsins – og nú alla leið til Akureyrar.

„Verk Zimoun einkennast af mjög sérstæðu samspili hljóðs, hreyfingar, rýmis og einfaldra efna. Hann vinnur gjarnan með hversdagslega hluti sem eru tengdir einföldum mótorum og skapa saman flókið og síbreytilegt hljóð- og sjónrænt umhverfi,“ segir Sigríður við akureyri.net. „Það sem er svo heillandi við verkin hans er að þau eru á sama tíma bæði mínimalísk og margbrotin. Áhorfandinn upplifir ekki bara hlutina sjálfa heldur verður hluti af hljóðinu og rýminu sem verkið skapar. Verk hans snúast að miklu leyti um hvernig einföld kerfi geta framkallað óvæntan margbreytileika og hvernig reglufesta og tilviljun mætast í sama verkinu.“
Svissneski listamaðurinn Zimoun (1977) vinnur innsetningar sem byggja á samspili hljóðs, arkitektúrs, tæknilausna og fjölbreyttra efna. Frá lokum tíunda áratugarins hefur hann þróað sérstakt myndmál sem birtist í yfirgripsmiklum innsetningum þar sem endurtekning, hreyfing og rýmisskynjun gegna lykilhlutverki. Verk hans hafa verið sýnd víða um heim í söfnum, gallerýum og iðnaðarrýmum þar sem þau umbreyta umhverfinu með bæði efnislegri nærveru og hljóði.

Staðbundnar innsetningar Zimoun eru að mestu unnar úr endurunnum efnum úr hversdagslegu umhverfi, sem listamaðurinn virkjar með handgerðum, vélknúnum ferlum þannig að þrívíður ómur skapast í rýminu. Þannig umbreytir hann heilu rýmunum í lifandi hljóðupplifun sem til verður úr krafsi, klóri, banki eða titringi.
Innsetningar Zimoun vísa gjarnan til náttúrunnar en einnig til óumhverfisvænna neysluvenja okkar, sjálfvirkra ferla, valdakerfa og sí-vaxandi vélvæðingar heimsins. Verk hans fela í sér samfélagslega gagnrýni og takast jafnframt á við heimspekileg og sálfræðileg viðfangsefni.
Innsetningin, með stóru baujunum, sem vísa til eins helsta atvinnuvegar þjóðarinnar, skapar þétt og dáleiðandi andrúmsloft, með skynörvandi eiginleikum og sterkri nærveru. Undir yfirborðinu má greina húmor og hárfína kaldhæðni í bland við óþreytandi þrautseigju og fáránleika. Verkið getur hreyft við gestum og hvatt þá til íhugunar um eigin stöðu og heiminn sem við lifum í.
Sýning Zimouns verður opnuð kl. 20.00 í kvöld.