Fara í efni
Fréttir

Ný Torfunefsbryggja formlega tekin í notkun

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Björg EA, togari Samherja, lagðist að Torfunefsbryggju við Pollinn á Akureyri í morgun og þar með var endurbyggð bryggjan formlega tekin í notkun.

Torfunefsbryggja var orðin ónýt og hafist handa við lagfæringar og mikla stækkun fyrir nokkrum árum, sem nú sér fyrir endann á. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi við Torfunef, þar á meðal veitingastöðum og verslunum. Minni skemmtiferðaskip, svokölluð „expedition“-skip, geta einnig lagst að bryggju og það fyrsta er væntanlegt á föstudagskvöldið – skipið Le Champlain.

Kristján Vilhelmsson og Ásthildur Sturludóttir tóku við landfestum. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

„Stór dagur“

Fánum prýdd lagðist Björg EA að bryggjunni klukkan 10:00 og tóku þau Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, við landfestum. Þegar togarinn fór frá bryggju aftur var það Baldvin Þorsteinsson, verðandi forstjóri Samherja, sem leysti landfestar.

„Þetta er stór dagur fyrir okkur Akureyringa. Þetta er stór áfangi fyrir okkur að fá ‏þetta svæði sem verður vonandi eins og Aker brygge í Ósló, iðandi af mannlífi og skemmtilegheitum,“ sagði Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri meðal annars þegar hún ávarpaði viðstadda á bryggjunni. „Svæðið verður góð viðbót við miðbæinn okkar. Mér finnst afskaplega viðeigandi að þetta glæsilega skip hafi verið fyrst til að leggjast að endurgerðri Torfunefsbryggju. Til hamingju Akureyringar.“

Baldvin Þorsteinsson leysti landfestar þegar Björg EA fór frá bryggju eftir stutta viðdvöl. Mynd: samherji.is/Hörður Geirsson

Vígslan lengi í minnum höfð

Guðmundur Freyr Guðmundsson er skipstjóri á Björgu EA. Hann segir heiður að Björg EA hafi verið fyrsta skipið til að leggjast að endurgerðri Torfunefsbryggju. „Akureyri er útgerðarbær og því viðeigandi að akureyskt skip vígi þetta mannvirki. Björg EA er glæsilegt vel búið skip og áhöfnin sem var með mér í þessu verkefni gerði það með ánægju og stolti,“ er haft eftir honum á vef Samherja. „Ég óska Akureyringum til hamingju með endurgerða Torfunefsbryggju og það verður spennandi að fylgjast með frekari framkvæmdum hérna á svæðinu. Þetta er ánægjulegur dagur, sem eflaust verður lengi í minnum hafður. Ég þakka Hafnarsamlagi Norðurlands fyrir að bjóða okkur að vígja bryggjuna.“

Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Baldvin Þorsteinsson, verðandi forstjóri Samherja. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Boðið var upp á kaffi og kleinur við athöfnina í morgun, og harmonikuleik Einars Guðmundssonar. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Mynd: Hilmar Friðjónsson

Mynd: Hilmar Friðjónsson